Landsamband hestamanna Árni Björn Pálsson er knapi ársins

  • 12. október 2024
  • Fréttir
Fjölhæfur afreksknapi og var árangur hans á árinu 2024 ótrúlegur

Knapi ársins 2024 er Árni Björn Pálsson en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga og deildar hrossabænda innan BÍ sem haldin er í Gullhömrum. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Árni Björn er fjölhæfur afreksknapi og var árangur hans á árinu 2024 ótrúlegur. Hæst ber að nefna sigur í A-flokki gæðinga á Landsmóti þar sem hann og Álfamær áttu frábærar sýningar en þau eru einnig í þriðja sæti á stöðulista í gæðingaskeiði. Átti Árni Björn einnig eftirminnilegar sýningar á Seðli frá Árbæ í A flokki. Árni Björn er Íslandsmeistari í tölti á Kastaníu frá Kvistum, hlutu þau silfurverðlaun á Landsmóti í sömu grein og eru efst á WR listanum í þessari grein í ár. Hann náði góðum árangri á skeiðbrautinni á hestum sínum Ögra frá Horni og Þokka frá Varmalandi. Árangur Árna var ekki einungis á keppnisvellinum heldur stóð hann sig vel á kynbótabrautinni. Hann sýndi 78 hross í kynbótadómi í 106 sýningum með frábærum árangri og átti margar eftirminnilegar sýningar á árinu. Árni Björn Pálsson er einstakur afreksknapi, sönn fyrirmynd fyrir elju sína, jákvæðni og fagmennsku í hvívetna og hlýtur hann því nafnbótina Knapi ársins 2024.“

Eiðfaxi óskar Árna Birni innilega til hamingju með árangur ársins!

Aðrir tilnefndir í þessum flokki eru þeir knapar sem tilnefndir voru í fullorðinsflokki

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar