Stóðrétttir norðan heiða
Það verður mikið um að vera norðan heiða laugardaginn 3.október. Réttað verður á tveimur stöðum, sölusýning í Melgerðismelarétt og réttardansleikur um kvöldið. Nú er um að gera að gleyma ICESAVE um stund og eiga góða helgi á Norðurlandinu.
Þverárrétt
Réttað verður á Þverárrétt í Öngulsstaðadeild laugardaginn 3. október kl 10:00.
Melgerðismelarétt
Réttað verður í Melgerðismelarétt laugardaginn 3. október, rekið inn kl 13:00. Seldar verða alls kyns ljúffengar veitingar
Sölusýning á Melgerðismelarétt
Sölusýning verður haldin í framhaldi af Melgerðismelarétt 3. október n.k. Ótamin tryppi verða sýnd í Melaskjóli og tamin hross á hringvellinum við stóðhestahúsið.
Skráning fer fram hjá Ævari í tölvupóstfang [email protected] eða síma 865 1370. Skrá skal nafn og fæðingarnúmer á hrossinu og verðhugmynd. Skráningargjald er kr 1000.- Leggist inn á reikningsnúmer 0302-26-7009 kt.700997-2439. Setjið nafn á hesti sem skýringu. Skráningu lýkur miðvikudaginn 30. september.
Stjórn hrossaræktarfélagsins Náttfara
Stóðréttardansleikur
Stóðréttardansleikur verður haldinn í Funaborg 3. október. Húsið opnar kl 22:00. Miðaverð kr 1500.- Hljómsveitin Í sjöundahimni leikur fyrir dansi fram á morgun.
Hestamannafélagið Funi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH