Áhugavert námskeið
Fjallað verður um undirstöðu góðrar fóðrunar s.s. að þekkja fóðurþarfir, fóðurtegundir og hvernig á að meta holdafar hrossa. Þá verður farið yfir aðbúnað og daglega umhirðu. Að lokum verður stutt kynning á gagnagrunninum WorldFeng og skýrsluhaldi honum tengdu. Námskeiðið verður að mestu byggt á fyrirlestrum en einnig verður tekin verkleg kennsla úti í hesthúsi í holdastigun.
Afar áhugavert námskeið fyrir allt hestafólk!
- Kennari: Halla Eygló Sveinsdóttir, ráðunautur í hrossarækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
- Tími: Föstudagurinn 18. mars kl. 14:00-17:00.
- Staður: Reiðhöllin í Spretti.
- Verð: 7.000 kr. Námskeiðsgjald þarf að greiða á staðnum með peningum, ath ekki posi.
- Síðasti skráningardagur er 16. mars. Tekið við skráningum í síma 516-5000.
Nánari upplýsingar hjá Höllu Eygló í síma 516-5024 eða 863-1803, einnig hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH