Borgarstjórinn í ökuferð
Í tilefni af Hestadögum í Reykjavík bauð LH Jóni Gnarr borgarstjóra í ökuferð í hestvagni. Beið hestvagninn ásamt ökumanni..
fyrir utan Ráðhúsið við Tjörnina er Jón kom út í dag og byrjaði Jón á því að gefa Grána sem dró vagninn bæði brauð og epli. Jón lék á alls oddi og þótti þetta greinilega skemmtileg tilbreyting frá amstri dagsins. Heiða Kristín Helgadóttir aðstoðarkona borgarstjóra fór með honum í ferðina.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH