Breytingar á landsliðinu
Róbert Bergmann og Smiður frá Hólum urðu Íslandsmeistarar í tölti.
Það leiðinlega atvik kom upp að hestur Róbert Bergmanns, Smiður frá Hólum, heltist og er því ekki klár í keppni. Þeir Róbert og Smiður munu því ekki keppa fyrir Íslands hönd á Heimsleikunum í Herning. Enginn annar mun koma í þeirra stað en frestur til að skila inn liðsskipan var runninn út og ekki hægt að gera neinar breytingar á liðinu.
Í samtali við liðsstjóra Íslenska landsliðsins, Pál Braga Hólmarsson, segir hann að Róbert muni samt fylgja liðinu út en landsliðið vill reyna gera eitthvað fyrir hann og vonandi muni ferðin nýtast honum í framtíðinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH