Sölusýning á Melgerðismelum

  • 3. október 2011
  • Fréttir
Sölusýning á Melgerðismelum

Hrossaræktarfélagið Náttfari verður með sölusýningu á Melgerðismelum, Stóðréttardaginn 8. október n.k.

 
Boðið er upp á sýningu taminna hrossa í reið og sýningu unghrossa í Melaskjóli.
 
Skráning berist á netfangið [email protected]
A. Nafn hross og fæðingarnúmer þess
B. Lýsing eiganda/umráðamanns á hrossinu
C. Verð
D. Eiganda og/eða umráðamann
 
Gefin verður út sýningarskrá auk þess sem hrossin verða mynduð og þær upplýsingar gerðar aðgengilegar á Netinu.
 
Verðskrá sölusýningarinnar er tvískipt:
– Hross í reið, mynduð og auglýst á Netinu: 3500.-
– Ótamin hross, upplýsingar settar á Netið: 1500.-
 
Félagar í Náttfara fá 500.- kr afslátt á þessum verðum.
 
Upplýsingar fást hjá Þorsteini Egilson, 8952598 [email protected]
 
F.h. stjórnar Náttfara,
Þorsteinn á Grund

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link