Ráðstefnan Hrossarækt 2012
Ráðstefnan Hrossarækt 2012 verður haldin í félagsheimilinu Hlégarði, Mosfellsbæ, laugardaginn 17. nóvember og hefst kl. 13:00. Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum.
Ráðstefnustjóri: Víkingur Gunnarsson.
Dagskrá:
13:00 Setning – Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt
13:05 Hrossaræktarárið 2012 – Niðurstöður kynbótamats – Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ
13:30 Heiðursverðlaunahryssur með afkvæmum 2012
14:10 Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins (aldursleiðrétt)
14:15 Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
14:20 Erindi: Líkamlegt álag á hross í kynbótasýningum, Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir, Háskólanum á Hólum
15:00 Tilnefningar og verðlaun fyrir ræktunarmann/menn ársins 2012
15:15 Kaffihlé
15:45 Umræður um ræktunarmál almennt
17:00 Ráðstefnuslit
Fagráð í hrossarækt
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH