Gait Academy á Sörlastöðum
Norski knapinn og reiðkennarinn Stian Pedersen, dómarinn Bent Rune Skulevold, sem einnig er norskur, og Eyjólfur Þorsteinsson sem er íslenskur Hafnfirðingur, hafa sameiginlega haldið reiðnámskeiðið „Gait Academy“ hér og var á meginlandinu um nokkurra ára skeið. Þeir hafa nú sett Ísland á kortið og munu halda námskeiðið í reiðhöllinni Sörlastöðum í janúar.
Á www.isibless.is kemur fram að Gait Academy er þriggja daga námskeið fyrir alla sem vilja komast á næsta stig reiðmennskunnar. Námskeiðið sé fyrir alla, hvar sem þeir eru staddir í reiðmennskunni.
Stian Petersen er einn fremsti reiðmaður Norðmanna og hefur keppt fyrir þeirra hönd á nokkrum heimsmeistaramótum, oftast með góðum árangri. Hann á í fórum sínum heimsmeistaratitla, bæði í fjórgangs og fimmgangsgreinum.
Eyjólfur Þorsteinsson er ákafur keppnismaður og hefur verið í fremstu röð hér á landi undanfarin ár. Hann hefur keppt fyrir Ísland á Norðurlanda- og heimsmeistaramótum og ávallt staðið sig vel.
Bent Rune Skulevold er einn virkasti íþrótta- og gæðingadómarinn innan FEIF og dæmdi meðal annars gæðingakeppni á LM2012 í Reykjavík. Frekari upplýsingar um Gait Academi má finna á gaitacademy.com
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH