„Hlökkum til að færa ykkur mótið heim í stofu“
Heimsmeistaramótið hefst í fyrramálið með dómum kynbótahrossa og í framhaldinu af því keppni í gæðingaskeiði. Veður er gott í Sviss og vellirnir hafa nú þornað eftir rigningarnar undanfarinna daga.
Algengasta spurningin sem okkur á Eiðfaxa berst þessa dagana snýst um það hvernig fólk sem ekki er á staðnum geti horft á mótið heima í stofu.
Arnar Bjarki hitti því Henning Drath sem er á bakvið Eyjatv sem sér um streymið frá mótinu, Henning fer yfir það með okkur hvernig best er að bera sig að til að sjá mótið.
Tinni slær heimsmet
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna hefst á morgun