Fræðslufundir hjá Fáki
Í þessari viku verða tveir fróðlegir fræðslufundir hjá Fáki sem eru öllum opnir og kostar kr. 500 inn. Fræðslufundirnir verða í félagsheimilinu og hefjast kl. 18:00.
Þriðjudaginn 29. okt. verður Sigurður Sæmundsson járningameistari með fyrirlestur um hófhirðu og járningar. Hann kemur inn á allt sem viðkemur hófum hesta, meðhöndlun og járningum.
Miðvikudaginn 30. okt verður Ólöf Loftsdóttir dýralæknir með fyrirlestur um allt sem viðkemur heilsu hrossa. Hún kemur inn á margt s.s. líkamsparta hestsins og virkni þeirra, helstu einkenni sjúkdóm og margt fleira.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir og hvetjum við alla félagsmenn sem og aðra hestaáhugamenn að nýta sér þessa fræðslufundi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH