Opið fyrir umsóknir í Meistaradeild Líflands og æskunnar

Sú breyting verður nú á deildinni að þátttöku aldur verður hækkaður úr 13 ára í 14 ára og miðast deildin þá við unglingaflokk,14-17 ára á keppnisárinu. Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri af löglegum mótum ársins 2025. Allir sækja um sem einstaklingar en þátttakendur velja sig sjálfir saman í lið að inngöngu lokinni.
Hvert lið er skipað fjórum knöpum og keppa allir í öllum keppnisgreinum sem reynir þó nokkuð á hestakost og er mikil og krefjandi skuldbinding, en jafnframt reynsla.
Keppt verður í: Fjórgangi V1 – Fimmgangi F1 – Gæðingalist- Tölti T1, slaktaumatölti T2 og gæðingaskeiði PP1.
Umsóknareyðublað má finna á heimasíðu deildarinnar mdeild.is
Umsóknarfrestur er til og með 20 september 2025 og skal senda umsóknina á netfangið: meistaradeildaeskunnar@gmail.com
Reglur deildarinnar verða kynntar vel á fundi allra þátttakenda og aðstandenda þeirra í haust, þar sem lið verða kynnt til leiks og keppendur skrifa þá einnig undir knapasamning um þátttöku í deildinni.
Deildinni vantar einnig öflugt fólk í stjórn þannig að ef einhver hefur áhuga á og vill bjóða fram krafta sína, þá endilega hafið samband.