Sómasýnendur ársins 2011
Fjórir sýnendur kynbótahrossa sem sýndu tíu sýningar eða fleiri á síðasta ári voru með enga skráða áverka á hrossum, þau Gísli Gíslason, Hekla Katharína Kristinsdóttir, Karen Líndal Marteinsdóttir og Mette Mannseth. Auk þeirra er sjö knapar skráðir með einn áverka.
Á fundum um Hrossarækt og hestamennsku sem fram fer um allt land þessi dægrin er eftirfarandi listi sómaknapa birtur til hvatningar og til að ýta undir góða og prúða reiðmennsku á kynbótasýningum komandi vors. Næsti fundur fer fram í kvöld í Sjálfstæðissalnum, Blönduósi og hefst kl. 20.30.
Nafn Fjöldi Hæfileikar Áverkar Hlutfall
Anton Páll Níelsson 10 7,88 1 10%
Erlingur Ingvarsson 10 7,82 1 10%
Gísli Gíslason 38 7,73 0 0%
Hekla K Kristinsdóttir 10 7,87 0 0%
Helga Una Björnsdóttir 10 7,83 1 10%
Jakob S Sigurðsson 86 7,94 7 8,1%
Jóhann K Ragnarsson 21 7,82 1 4,8%
Karen L Marteinsdóttir 10 7,58 0 0%
Mette Mannseth 30 8,16 0 0%
Sara Ástþórsdóttir 10 8,09 1 10%
Steingrímur Sigurðsson 13 8,09 1 7,7%
Vignir Siggeirsson 10 7,77 1 10%
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH