Nýi töltarinn hans Jóhanns-
Heimsmeistarinn fimmfaldi Jóhann R. Skúlason var kunnugt kjörinn Knapi ársins á Uppkeruhátíð hestamanna í byrjun mánaðarins. Eiðfaxi spjallaði við Jóhann um töltþjálfun, skagfirskar fyrirmyndir og þrautsegju sem hefur skilað sér í sigursælum ferli og mun viðtal við hann birtast í 8. tölublaði – veglegri jólaútgáfu tímaritsins sem kemur út í desember.
Í viðtalinu upplýsir Jóhann meðal annars að hann sé nú að þjálfa upp nýjan afbragðstöltara sem horfir jafnvel í að verða keppnishestur hans á Heimsmeistaramótinu 2013 í Berlín. „Ég er með 5 vetra hest í þjálfun, Tígul frá Kleiva, og ég stefni á að byrja að keppa á honum á næsta ári. Svo mun ég bara sjá hvernig gengur og hvort hann standist væntingar,“ segir Jóhann en hann kom fram með Tígul í kynbótadómi á Heimsmeistaramótinu í sumar og sigraði hann Feyki frá Háholti með brotamun í flokki 5 vetra stóðhesta en þeir fengu þá báðir 8,38 í aðaleinkunn.
Tígull er gullfallegur klár, fótaburðartöltari eins og sést á meðfylgjandi myndbandi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH