Hvaða feður eiga flest folöld?

  • 10. desember 2025
  • Fréttir
Nú er rétti tíminn til að fara inn í WorldFeng og ganga frá skráningum þessa árs.

Senn styttist í nýtt ár, þannig nú er rétti tíminn til að fara inn í WorldFeng og ganga frá skráningum þessa árs. Gott er að fara í gegnum eftirfarandi atriði:

  1. Er búið að skrá öll folöld?
  2. Er búið að skrá fang á allar hryssur sem haldið var í sumar?
  3. Er er búið að skrá geldingu á þá fola sem geltir voru í sumar?
  4. Er búið að gera grein fyrir afdrifum hrossa?
  5. Er litaskráning í lagi, ef til vill hefur gleymst að skrá lit á eitthvert hross?
  6. Hefur gleymst að ganga frá eigandaskiptum?
  7. Hafa öll hross skráðan umráðamann?
  8. Er netfangið þitt í WorldFeng rétt?

Þegar þetta er ritað er búið að grunnskrá 3.306 folöld, af þeim hafa 2.379 skráð örmerki. Samkvæmt skráningum í WF hefur fjöldi fæddra folalda síðustu ár verið rétt innan við 6.000, þannig enn er slatti af folöldum óskráð. Í töflu 1 er hægt að sjá fjölda skráðra folalda eftir svæðum.

Þó aðeins sé búið að skrá rúmlega 50% fæddra folalda þá er gaman að skoða hvað feður eiga flest þessara folalda. Þegar niðurstöður voru teknar út úr WF Þann 9/12 2025 eiga 32 hestar 20 eða fleiri folöld, sjá nánar í töflu 2. Það þýðir eins og staðan er í dag að 34% skráðar folalda undan 32 feðrum.


Ef eitthvað er óljóst varðandi skýrsluhaldið er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin agg@rml.is eða halla@rml.is.

Sjá nánar: 
Leiðbeiningar um skráningar í heimarétt WF

 

www.rml.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar