Upphitun fyrir Norðurlandamót
Kristján Árni og Krafla frá Syðri-Rauðalæk eru á meðal þátttakenda á Norðurlandamóti. Ljósmynd: Henk & Patty
Norðurlandamótið fer fram í Svíþjóð, nánar tiltekið á Margaretehof á Skáni í Suður-Svíþjóð, dagana 4.–9. ágúst. Alls eru það sex þjóðir sem senda keppendur til leiks en það eru Danmörk, Finnland, Færeyjar, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Keppt er í þremur aldursflokkum, þ.e. fullorðins-, ungmenna- og unglingaflokki, og er keppt bæði í íþrótta- og gæðingakeppni.
Mót þetta er afar skemmtilegt áhorfs og margir góðir kapar og hestar taka þátt. Misjafnt hefur verið hversu sterkt lið Ísland sendir til leiks og veltur það oft á því hvort knapar okkar flytja út sína keppnishesta fyrir mótið eða styðjast við lánshesta ytra, en hið síðarnefnda hefur oft verið raunin. Nú er hins vegar annað upp á teningnum því margir knapar mæta með keppnishesta sem þeir þekkja vel. Því fylgir alltaf mikill heiður að fá að keppa fyrir hönd síns lands og skiptir þá engu máli hvort tilefnið er Norðurlanda- eða heimsmeistaramót.
Mótið er að sjálfsögðu sýnt í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV og verður öflugur fréttaflutningur af því hér á vefsíðu Eiðfaxa. Í grein þessari ætlum við að kynna íslensku keppnispörin fyrir lesendum og á sama tíma gera tilraun til að giska á okkar helstu keppinauta í hverri grein. Við byrjum á fullorðinsflokki.
A-flokkur
Ísland teflir fram tveimur hestum í A-flokki og ber fyrst að kynna Gorm frá Villanora og Þórð Þorgeirsson. Þeir eru ríkjandi Norðurlandameistarar í greininni og hlutu m.a. 8,97 í A-úrslitum á NM árið 2024. Þórð þarf vart að kynna fyrir neinum; hann er lifandi goðsögn í hnakknum og alltaf gaman að sjá hann í íslenska landsliðsbúningnum. Gormur er 10 vetra gamall undan Álfi frá Selfossi og Grágás frá Gýgjarhóli, dóttur Smára frá Skagaströnd. Hann er jafnvígur alhliðahestur með háan kynbótadóm.
Þá keppa Hlekkur frá Ytra-Vallholti og Kristján Árni Birgisson einnig í A-flokki. Kristján er á sínu fyrsta ári í fullorðinsflokki en er nú þegar með mikla reynslu og sigurhefð, og varð til að mynda tvöfaldur heimsmeistari í 250 og 100 metra skeiði árið 2025 á Kröflu frá Syðri-Rauðalæk, þá sem ungmenni. Hlekkur er 16 vetra gamall undan Arnoddi frá Auðsholtshjáleigu og Andvara-dótturinni Gnótt frá Ytra-Vallholti. Hlekkur hlaut háan kynbótadóm á sínum tíma og hefur átt ágætan keppnisferil í fimmgangs- og skeiðgreinum.
Völsungur frá Skeiðvöllum og Susanne Larsen Murphy keppa fyrir hönd Danmerkur og gætu orðið erfið viðureignar í A-flokki en Völsungur varð annar í A-flokki á NM 2024, þá með 8,83 í úrslitum. Heimir från Solhäll, sýndur af Eyvindi Mandal-Hreggviðssyni, er einnig skráður til leiks fyrir hönd Svíþjóðar. Heimir hefur verið að gera það gott í A-flokki í ár og varð til að mynda fyrir ofan Völsung og Susanne á gæðingamóti á Margaretehofi fyrr í sumar.

Þórður Þorgeirsson og Gormur fra Villanora á NM2024. Ljósmynd: Anja Mogensen
B-flokkur
Líkt og í A-flokki eru það tveir hestar sem keppa í B-flokki fyrir hönd Íslands. Agnar frá Margrétarhofi ásamt Reyni Erni Pálmasyni eru þar skráðir til leiks. Reynir er þaulreyndur knapi sem hefur oftar en ekki skilað sínu í landsliðsjakkanum og varð m.a. heimsmeistari árið 2015. Agnar er flestum í fersku minni frá Landsmóti í sumar þar sem hann varð annar í elsta flokki stóðhesta. Hann er átta vetra gamall undan Ölni frá Akranesi og Garúnu frá Garðshorni á Þelamörk. Agnar og Reynir hafa farið vel af stað á keppnisvellinum og urðu efstir í B-flokki í sumar á úrtökumóti hestamannafélagsins Harðar þar sem þeir hlutu í úrslitum 8,79.
Náttfari frá Varmalæk og Þórarinn Eymundsson eru einnig fulltrúar Íslands í B-flokki. Þórarinn hefur unnið marga stóra titla og varð m.a. tvöfaldur heimsmeistari á Krafti frá Bringu. Náttfari er átta vetra gamall undan Þráni frá Flagbjarnarholti og heiðursverðlaunahryssunni Nótt frá Varmalæk. Náttfari og Þórarinn kepptu í B-flokki á úrtökumóti Skagfirðings í sumar þar sem þeir hlutu hæst 8,69 í forkeppni.
Lukku-Blesi frá Selfossi, setinn af Christinu Lund, er einn mesti gæðingur Norðurlanda um þessar mundir og ef þeim tekst vel upp verða þau að teljast sigurstrangleg í B-flokki. Lukku-Blesi hlaut m.a. 9,27 í A-úrslitum í B-flokki á norska meistaramótinu á síðasta ári.
Tölt T1
Í tölti keppa þau sömu tvö pör fyrir Ísland og skráð eru í B-flokkinn, þ.e. Þórarinn Eymundsson og Náttfari frá Varmalæk, og Reynir Örn Pálmason og Agnar frá Margrétarhofi. Þórarinn og Náttfari hafa hlotið hæst 7,50 í forkeppni í T1 utanhúss á Hólamótinu í sumar, þar sem þeir unnu A-úrslit með 7,83 í einkunn. Reynir og Agnar hafa ekki keppt mikið í T1, en Agnar hefur hæst hlotið 7,17 í T1.
Jóhann Rúnar Skúlason og Evert frá Slippen, sem keppa fyrir hönd Danmerkur, eru fyrirfram langlíklegastir til þess að sigra í þessari grein. Þeir hafa náð frábærum árangri í tölti og er Jóhann algjör snillingur í greininni, enda margfaldur heimsmeistari og sigurvegari. Þá gæti Laura Midtgård, liðsfélagi Jóhanns, á Gimsteini frá Íbishóli blandað sér í baráttuna

Jói Skúla og Evert frá Slippen verða erfiðir viðureignar í tölti og fjórgangi. Ljósmynd: Henk & Patty
Tölt T2
Ísland teflir ekki fram neinum keppanda í slaktaumatölti í fullorðinsflokki. Sigurstranglegasta parið í þessari grein er áðurnefndur Lukku-Blesi frá Selfossi og Christina Lund, en þau eru ríkjandi Norðurlandameistarar í greininni frá árinu 2024 og voru í A-úrslitum á Heimsmeistaramótinu árið 2025. Þá hefur Hans-Christian Løwe á Hrannari fra Vivildgård staðið sig vel í þessari grein en þeir keppa fyrir Danmörk.

Christina Lund og Lukku-Blesi munu að öllum líkindum láta að sér kveða á NM. Ljósmynd: Anja Mogensen
Fjórgangur V1
Í fjórgangi eru það einnig þeir Þórarinn og Náttfari, og Reynir og Agnar sem eru fulltrúar Íslands. Agnar hefur hæst hlotið 7,00 í fjórgangi. Þórarinn og Náttfari hafa hæst hlotið 6,90 í fjórgangi í Meistaradeild KS í vetur.
Sigurstranglegustu pörin í þessari grein eru þau Jóhann Rúnar á Evert og Christina Lund á Lukku-Blesa sem áður hafa verið nefnd, en þau voru bæði í A-úrslitum í fjórgangi á HM árið 2025. Þá er einnig vert að nefna James Faulkner á Hálfmána, sem voru í B-úrslitum á sama móti.
Fimmgangur F1
Fulltrúi Íslands í fimmgangi er Snorri Dal á Gimsteini frá Víðinesi. Þeir eru mjög vaxandi par í þessari grein og eru um þessar mundir eitt af þeim betri pörum sem við eigum. Þeir riðu til úrslita á Íslandsmótinu í sumar þar sem þeir fengu 7,17 í forkeppni og urðu í fjórða sæti í A-úrslitum með 7,45 í einkunn. Snorri hefur mikla reynslu, hefur verið á meðal fremstu knapa landsins um áratugaskeið og hefur alltaf undir höndum öfluga keppnishesta. Gimsteinn er 14 vetra gamall undan Óskasteini frá Íbishóli og Snerru frá Víðinesi 2.
Helstu keppinautar Snorra verða að öllum líkindum nokkrir, því í þessari grein eru nokkuð mörg pör sem góðum árangri hafa náð. Helst er þó að nefna Anne Frank Andresen á Vökli frá Leirubakka, sem var m.a. í A-úrslitum á HM 2025 og NM 2024. Þá er Julie Christiansen komin með í sínar hendur Djáknar frá Selfossi sem Elvar Þormarsson reið til úrslita í fimmgangi á HM 2025. Julie veit hvað þarf til að sigra og varð heimsmeistari í fimmgangi árið 2015. Þá hafa þeir Sigurður Óli Kristinsson og Lótus fra Søgård náð í góðar einkunnir í fimmgangi í ár.

Anne Frank og Vökull Ljósmynd: Henk & Patty
250 metra skeið
Í 250 metra skeiði teflir Ísland fram þeim Kristjáni Árna Birgissyni á Kröflu frá Syðri-Rauðalæk, Bergþóri Eggertssyni á Fjalladísi frá Fornusöndum og Sigurði Narfa Birgissyni á Randver frá Þóroddsstöðum. Árangur Kristjáns Árna og Kröflu var nefndur hér áður í sambandi við kynningu á knöpum í A-flokki, en þau urðu heimsmeistarar í þessari grein árið 2025 í ungmennaflokki og er besti tími þeirra saman 22,38 sekúndur. Krafla er 11 vetra undan Stakki frá Flugumýri II og Frekju frá Reykjavík.
Sigurður Narfi og Randver eru á sínu þriðja keppnistímabili saman og eru nú ríkjandi meistarar í Þýskalandi í greininni þar sem þeir náðu tímanum 22,64 sekúndur. Randver er 18 vetra gamall undan Illingi frá Tóftum og Gunni frá Þóroddsstöðum.
Bergþór hefur fjórum sinnum orðið heimsmeistari í 250 metra skeiði og býr yfir gífurlegri reynslu. Koma hans í íslenska landsliðið styrkir það til muna. Hann er á Fjalladísi frá Fornusöndum sem er yfirburða skeiðhross og sýndi það með Elvari Þormarssyni á HM 2023 þar sem þau urðu m.a. heimsmeistarar í þessari grein, og í fjórða sæti á HM 2025 með Sigurð Óla Kristinsson sem knapa. Aðalgrein Bergþórs og Fjalladísar er gæðingaskeið, en hér gætu þau þó einnig látið að sér kveða.
Það verður þó ekkert grín að sigra hinn eldfljóta Ímni fra Egeskov og knapa hans, Natalie Fischer, sem eru ríkjandi heimsmeistarar í þessari grein. Þá hafa Svíarnir Daníel Ingi Smárason á Sif från Lindhof og Guðmundur Einarsson á Draumi från Tängmark náð góðum tímum í ár. Það hefur Sigurður Óli Kristinsson á Lúpínu frá Garðabæ einnig gert.
Gæðingaskeið PP1
Í gæðingaskeiði er Bergþór Eggertsson á Fjalladís frá Fornusöndum eini fulltrúi Íslands, en þetta par verður að teljast það sigurstranglegasta í greininni. Hans helsti keppinautur verður að öllum líkindum áðurnefndur Guðmundur Einarsson á Draumi från Tängmark og liðsfélagi hans í sænska liðinu, Wictoria Gren á Kjarvali fra Søtofte sem varð fimmti í gæðingaskeiði á HM 2025. Þá hefur Sigurður Óli á Lúpínu frá Glæsibæ einnig náð góðri einkunn í gæðingaskeiði í ár.
100 metra skeið
Í 100 metra skeiði eru það skeiðknaparnir okkar þeir Kristján Árni Birgisson á Kröflu frá Syðri-Rauðalæk og Sigurður Narfi Birgisson á Randver frá Þóroddsstöðum sem halda uppi heiðri lands og þjóðar. Í þessari grein, líkt og í 250 metra skeiði, eru Natalie Fischer og Ímnir fra Egeskov þau sem erfiðust verða viðureignar. Einnig hafa Filippa Hellten og Óðinn from Inchree ásamt Guðmundi og Draumi, sem bæði keppa fyrir Svíþjóð, náð góðum tímum í ár. Að lokum má alls ekki gleyma fyrrum heimsmeistaranum í greininni, Glúmi frá Þóroddsstöðum og Taniu Jensen.

Natalie Fischer og ímnir fra Egeskov. Ljósmynd: Henk & Patty
Framundan eru spennandi dagar
Það er því ljóst að það stefnir í æsispennandi keppni á Margaretehof þar sem mörg af bestu hestum og knöpum Norðurlanda munu mæta til leiks. Íslenska landsliðið teflir fram gríðarlega sterkum og reynslumiklum hópi sem verður frábært að fylgjast með takast á við harða keppinauta frá hinum þjóðunum. Við hvetjum auðvitað alla hestamenn til að fylgjast með allri spennunni í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV, auk þess sem við munum halda lesendum upplýstum um nýjustu fréttir og úrslit hér á vefnum. Áfram Ísland!
Upphitun fyrir Norðurlandamót
Hæst dæmdi hestur í heimi
Stórsókn hjá Spretti
Vel heppnað mót á Flúðum