Hross veiktust á Norðurlandamótinu
Í gær, sunnudag, á úrslitadegi Norðurlandamótsins kom upp sú staða að hross voru orðin veik en fyrst var um tvö hross að ræða en fór sú tala hækkandi eftir því sem leið á daginn.
Virtist vera einskorðað við danska landsliðið
Samkvæmt heimildum Eiðfaxa komu veikindin fyrst upp í hesthúsinu þar sem danska liðið var og var Evert frá Slippen í þessum hópi en hann og Jóhann Rúnar Skúlason voru efstir inn í úrslit í bæði tölti og fjórgangi en þurftu að afskrá.
Skömmu eftir klukkan 15:15 á sunnudag sendi mótshaldari frá sér tilkynningu. Í opinberri yfirlýsingu kom fram að öll veiku hrossin tilheyri sama landsliði og að ólíkar þjóðir séu hýstar í aðskildum hesthúsum.
Útilokuðu alvarlega sjúkdóma
Einnig kom fram í yfirlýsingunni þeirra að tekið hafið verið sýni úr fyrsta hrossinu sem veiktist og það reyndist vera neikvætt fyrir EHV (hestaherpesveiru), hestainflúensu og anaplasmósu. Mótshaldari lagði samt áherslu á að enn væri verið að bíða eftir fleiri niðurstöðum.
Engin hross við verðlaunaafhendingu
Fór mótshaldarar strax í umfangsmiklar sóttvarnaráðstafanir. Hross með sjúkdómseinkenni voru einangruð eða flutt af mótssvæðinu, og sérstöku starfsfólki var falið að sinna eingöngu þessum hrossum til að draga úr smithættu.
Einnig voru engin hross leyfð við verðlaunaafhendingar til að minnka smithættu.
Fylgjast með hrossunum eftir móti lýkur
Samkvæmt mótshöldurum mun dýralæknir mótsins fylgjast náið með hrossunum, einnig eftir að mótinu lýkur. Öllum landsliðum var tilkynnt að hrossin þyrftu að vera höfð í einangrun heima fyrir í þrjár vikur eftir heimkomu og að hiti þeirra verði mældur daglega.
Mótshaldari lagði einnig áherslu á að hiti allra hrossa hafði verið mældur áður en mótið hófst og síðan tvisvar á dag alla mótsdagana.
Hross veiktust á Norðurlandamótinu