Markús Ingi tekur þátt í Mongol Derby

  • 10. ágúst 2026
  • Fréttir

Markús Ingi mættur á sléttur Mongólíu Mynd: The Mongol Derby Facebook

The Mongol Derby er þolreið sem haldin er í Mongólíu í ágúst en keppnin var fyrst haldin 2009.

Þolreiðin hófst 5. ágúst og eiga íslendingar einn fulltrúa, Markús Inga Karlsson. Þetta er í þriðja sinn sem íslendingur tekur þátt en Aníta Margrét Aradóttir var fyrst til að taka þátt árið 2014 og síðan tók Anna Guðný Baldursdóttir þátt árið 2025. Markús Ingi er sjómaður og vélaverkfræðingu og ólst upp á hrossaræktarbúinu Bergi á Snæfellsnesi.

Þúsund kílómetrar á tíu dögum

Keppnin er þúsund kílómetra löng þolreið yfir mongólsku steppuna á hálfvilltum hestum. 45 knapar taka þátt og eru um 1.500 hestar notaðir. Keppnin eru tíu dagar, um það bil, og ríða knapar á hálfvilltum hestum og skipta um hest á 35 km. fresti í svokölluðum „Urtuu“ sem eru hestastöðvar sem hirðingafjölskylda rekur. Þegar knapinn kemur í mark hefur hann setið tæplega 30 ólíka hesta, sem allir eru valdir af handahófi.

Riðið er frá klukkan sjö að morgni til sjö að kvöldi. Hægt er að gista í urtuu-stöðvunum eða tjaldað þar sem dagurinn endar. Farangurinn má mest vega 5 kíló í hnakktöskunum og er vigtaður á ráslínunni. Engar svipur, engir sporar, engin merkt leið, engin utanaðkomandi aðstoð og ekkert nesti. Knaparnir rata með GPS-tæki og korti og velja sjálfir leiðina yfir land þar sem engar slóðir liggja.

Hestar þurfa standast dýralæknaskoðanir

Hver hestur er skoðaður af dýralækni áður en knapinn tekur við honum og aftur þegar hann skilar honum. Standist hesturinn ekki skoðun að leggnum loknum tekurðu knapinn út tímarefsingu á meðan hann jafnar sig. Brjótirðu reglur um velferð hrossanna ertu úr keppni — engin áfrýjun. Þá gildir fjöldi tæknilegra reglna sem eiga að tryggja öryggi hesta og manna og jafna, spennandi keppni yfir þúsund kílómetra af óbyggðum. Að öðru leyti er þetta undir knapanum komið. Hvenær á að herða á og hvenær að slaka. Hvort hann ríður á eigin vegum eða slæst í för með öðrum keppendum um stund.

Fimm hætt keppni

Hægt er að fylgjast með keppninni HÉR af 43 knöpum sem voru skráðir hafa fimm hætt keppni. Keppendur eru alls staðar að úr heiminum en þó er helmingur þeirra er frá Bandaríkjunum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link