Gæðingaknapi ársins
Tilnefnd sem gæðingaknapi ársins eru Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, Jakob Svavar Sigurðsson, Jóhann Kristinn Ragnarsson, Kári Steinsson og Siguroddur Pétursson. Fjórðungsmót Austurlands var stærsta gæðingakeppnin í ár en sigurvegararnir í A og B flokki eru bæði tilnefnd til gæðingaknapa ársins. Gæðingamót Fáks var mjög sterkt mót en þar voru einir bestur A og B flokks hestar landsins mættir til leiks. Siguroddur og Hrynur frá Hrísdal sigruðu þar b flokkinn með 9,29 í einkunn sem er hæst einkunn sem hefur verið gefin í ár í gæðingakeppni.
Hér fyrir neðan er listaður upp árangur knapa af mótum sem hefur verið skilað úr kappa sem og Fjórðungsmótinu. Einungis er tekin fram árangur þegar knapi er í 3. sæti eða ofar.
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir
1. sæti A flokkur Fjórðungsmót austurlands
1. sæti A flokkur Félagsmót Hornfirðings
2. sæti A flokkur Hestaþing Kóps
2. sæti B flokkur Hestaþing Kóps
Jakob Svavar Sigurðsson
1. sæti B flokkur Opið gæðingamót Spretts, 9.04 í einkunn.
1. sæti A flokkur Gæðingamót Fáks
Jóhann Kristinn Ragnarsson
1. sæti B flokkur Gæðingaveisla Sörla og Mána
1. sæti A flokkur Stórmót Geysis
1. sæti A flokkur Hestaþing Snæfellings
2. sæti B flokkur Stórmót Geysis
2. sæti A flokkur Gæðingamót Geysis
Kári Steinsson
1 sæti B flokkur Fjórðungsmót Austurlands
1 sæti B flokkur Félagsmót Hornfirðings 9,17
2. sæti A flokkur Fjórðungsmót Austurlands
Siguroddur Pétursson
1 sæti B flokkur Gæðingamót Fáks, 9.29 Hæst einkunn sem gefin var á gæðingamóti í ár.
Styttu haustið með EiðfaxaTV