Miðasala á World Toelt hafin
Miðasala á Heimsbikarmótið – World Toelt 2012 – sem fer fram 24. – 25. febrúar í Óðinsvéum er hafinn.
Í fréttatilkynningu frá aðstandendum mótsins kemur fram að margir afreksknapar víðsvegar frá Evrópu hafi tilkynnt komu sína á mótið.
Boðið er upp á afslátt á miðum í bestu sæti á leikvanginn Arena Fyn ef miðar eru keyptir fyrir 15. desember.
Verðskrá 15.11 – 15.12.2011
Svæði B+C+G+H
Aðgangur á föstudeginum:
Börn (til 11 ára) : 100 DKR
Fullorðnir : 150 DKR
Helgarpassi:
Börn: 200 DKR
Fullorðnir : 400 DKR
Svæði A+D+F+I
Aðgangur á föstudeginum:
Börn: 70 DKR
Fullorðnir: 110 DKR
Helgarpassi:
Börn: 150 DKR
Fullorðnir: 350 DKR
Hægt er að kaupa miða gegnum www.sporti.dk.
Heimasíða mótsins er worldtolt.dk
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH