Ásmundur Ernir er maður ársins á Eiðfaxa
Eiðfaxi stóð fyrir kjöri á manni ársins í fjórða sinn. Lesendur okkar gátu tilnefnt þær manneskjur sem þeim þótti skara fram úr á árinu og í kjölfarið kosið um þau sem flestar tilnefningar hlutu. Rúmlega áttahundruð tóku þátt í kosningunni á vef okkar en fimm aðilar voru tilnefndir það voru þau: Ásmundur Ernir Snorrason, Ármann Örn Magnússon, Brynja Kristinsdóttir, Jens Einarsson og sjálfboðaliðar í hestamennsku.
Það fór svo að lokum að Ásmundur stóð uppi sem hestamaður ársins. Blaðamenn Eiðfaxa komu honum að óvörum heima hjá honum og fjölskyldunni í glæsilegri aðstöðu þeirra að Litlalandi í Ásahreppi.
Viðtalið við hann af þessu tilefni má sjá hér að neðan.
Árni Svavarsson á Hlemmiskeiði látinn
Fréttatilkynning frá stjórn Suðurlandsdeildar
Sprettur leitar að sjálfstæðum, drífandi, þjónustulunduðum og jákvæðum framkvæmdastjóra
Kosið um reiðkennara ársins 2025 hjá FEIF
Samskipadeildin – Áhugamannadeild Spretts hefst í febrúar