Hanne gerði góða ferð norður
Hanne Smidesang og Tónn í keppni kvöldsins. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Keppni í slaktaumatölti í Meistaradeild KS fór fram í Svaðastaðahöllinni í kvöld. Var þetta önnur keppnisgreinin í ár sem keppt er í og næsta grein er fimmgangur , sem fram fer 13.mars. Kvöldið í kvöld var tileinkað Einstökum börnum á alþjóðlegum degi sjaldgæfra sjúkdóma sem er í dag, 27. febrúar.

Þeir Trausti Ingólfsson fyrir hönd Diesel afl, sem bauð frítt inn í kvöld, og Þórður Bragi Sigurðsson. Sáu um að veita verðlaun kvöldsins. Með þeim er gæðingurinn Tónn frá Hjarðartúni. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Slaktaumatölt er krefjandi grein og er oft stutt á milli þess að knöpum takist vel til og að miður fari. Þeir knapar sem riðu til úrslita áttu góðar sýningar í forkeppni og varð til þess að keppni í A-úrslitum var sterk og spennandi.
Hanne Oustad Smidesang keppti sem villiköttur fyrir lið Hofstorfunnar/550 á Tóni frá Hjarðartúni. Hún sigraði keppinauta sína með nokkrum yfirburðum hlaut 7,90 í forkeppni og 8,38 í úrslitum. Góð ferð norður hjá Hanne og Tóni sem eru á meðal sterkustu para landsins í þessari grein. Önnur varð Vera Scneiderchen á Feyki frá Selfossi með 7,58 í úrslitum og stuttu á eftir henni í þriðja sætinu varð Mette Mannseth á Töfra frá Þúfum með 7,46.
Lið Þúfna varð stigahæsta lið kvöldsins með 72 stig, þar á eftir kom lið Líflands með 59 stig og í því þriðja Hrímnir/Hestklettur með 54 stig.

Keppendur í liði Þúfna í kvöld voru þær Mette Mannseth, Barbara Wenzl og Lea Busch. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Heildarúrslit
| Tölt T2 | |||
| Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Hanne Oustad Smidesang | Tónn frá Hjarðartúni | 7,90 |
| 2-3 | Mette Mannseth | Töfri frá Þúfum | 6,93 |
| 2-3 | Barbara Wenzl | Maístjarna frá Naustum III | 6,93 |
| 4 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | Hryggur frá Hryggstekk | 6,90 |
| 5 | Vera Evi Schneiderchen | Feykir frá Selfossi | 6,83 |
| 6-8 | Lea Christine Busch | Kvaran frá Ölduhofi | 6,77 |
| 6-8 | Þorsteinn Björn Einarsson | Hagur frá Hofi á Höfðaströnd | 6,77 |
| 6-8 | Auður Karen Auðbjörnsdóttir | Hátíð frá Garðsá | 6,77 |
| 9 | Agnar Þór Magnússon | Jósteinn frá Íbishóli | 6,73 |
| 10 | Finnbogi Bjarnason | Einir frá Enni | 6,70 |
| 11 | Kristján Árni Birgisson | Stúdent frá Ásmúla | 6,43 |
| 12 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Sindri frá Lækjamóti II | 6,33 |
| 13-15 | Björg Ingólfsdóttir | Valíant frá Miðhjáleigu | 6,20 |
| 13-15 | Matthías Sigurðsson | Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 | 6,20 |
| 13-15 | Magnús Bragi Magnússon | Óskhyggja frá Íbishóli | 6,20 |
| 16 | Elvar Einarsson | Muni frá Syðra-Skörðugili | 6,17 |
| 17 | Sigurður Dagur Eyjólfsson | Andrá frá Mykjunesi 2 | 6,03 |
| 18 | Herjólfur Hrafn Stefánsson | Yllir frá Reykjavöllum | 5,90 |
| 19-20 | Sigurður Heiðar Birgisson | Fagri frá Skeiðvöllum | 5,87 |
| 19-20 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Stofn frá Akranesi | 5,87 |
| 21 | Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir | Þytur frá Stykkishólmi | 5,70 |
| 22 | Þorsteinn Björnsson | Gefjun frá Hólum | 5,57 |
| 23 | Ólöf Bára Birgisdóttir | Blær frá Tjaldhólum | 5,53 |
| 24 | Sigurður Steingrímsson | Sindri frá Kálfsstöðum | 5,23 |
| 25 | Atli Freyr Maríönnuson | Sif frá Staðarhofi | 5,03 |
| 26 | Björgvin Helgason | Eyjasól frá Litlu-Brekku | 4,20 |
| 27 | Julian Veith | Tindur frá Núpstúni | 4,13 |
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 6 | Finnbogi Bjarnason | Einir frá Enni | 7,21 |
| 7 | Þorsteinn Björn Einarsson | Hagur frá Hofi á Höfðaströnd | 6,92 |
| 8 | Agnar Þór Magnússon | Jósteinn frá Íbishóli | 6,79 |
| 9-10 | Lea Christine Busch | Kvaran frá Ölduhofi | 6,75 |
| 9-10 | Auður Karen Auðbjörnsdóttir | Hátíð frá Garðsá | 6,75 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Hanne Oustad Smidesang | Tónn frá Hjarðartúni | 8,38 |
| 2 | Vera Evi Schneiderchen | Feykir frá Selfossi | 7,58 |
| 3 | Mette Mannseth | Töfri frá Þúfum | 7,46 |
| 4 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | Hryggur frá Hryggstekk | 6,96 |
| 5 | Barbara Wenzl | Maístjarna frá Naustum III | 6,75 |
Hanne gerði góða ferð norður
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Katla Sif og lið Fornusanda á toppnum í 1.deild Hringdu