1. deildin í hestaíþróttum Katla Sif á toppinn

  • 27. febrúar 2026
  • Fréttir

Katla Sif Snorradóttir og Sæmar frá Stafholti sigurvegarar kvöldsins Myndir: Gunnhildur Ýrr

Í kvöld var keppt í gæðingalist í 1. deild Hringdu í hestaíþróttum.

Sýning Kötlu Sifjar Snorradóttur og Sæmars frá Stafholti þótti bera af í gæðingalistinni en þau hlutu 7,30 í einkunn. Hesturinn var glæsilegur og búinn að bæta í síðan í fjórgangnum síðast. Sigurinn tryggir henni einnig efsta sætið í einstaklingskeppninni með 20 stig.

Benedikt Ólafsson varð annar á Rökkva frá Ólafshaga með 7,07 í einkunn og í þriðja varð Lea Schell á Húna frá Efra-Hvoli með 7,00 í einkunn.

Lið Fornusanda stigahæst

Lið Fornusanda hlaut liðaplattann en allir þrír knapar voru í úrslitum. Lea var þriðja, Sigvaldi Lárus Guðmundsson fimmti og Ólafur Þórisson sjötti. Þessi frammistaða skaut þeim í efsta sætið í liðakeppninni en þau voru í öðru sæti fyrir kvöldið, einu stigi fyrir neðan efsta liðið.

Næsta keppniskvöld er 12. mars og þá verður keppt í slaktaumatölti.

Niðurstöður úr gæðingafiminni

Nr. Knapi Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Lokaeinkunn

  1. Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti Sportfákar 7.3 7.3 7.7 7.1 7.3 = 7.30
  2. Benedikt Ólafsson Rökkvi frá Ólafshaga Hrímnir 6.8 6.8 7.1 7.4 7.3 = 7.07
  3. Lea Schell Húni frá Efra-Hvoli Fornusandar 7.2 7.4 7.1 6.7 6.4 = 7.00
  4. Frederica Fagerlund Sjarmur frá Fagralundi Kidka/hestakofi 6.7 7.1 6.8 7.2 7 = 6.97
  5. Sigvaldi Lárus Guðmundsson Fenrir frá Kvistum Fornusandar 7 7 6.8 6.7 7 = 6.93
  6. Ólafur Þórisson Fáfnir frá Miðkoti Fornusandar 7 6.9 6.8 6.6 6.9 = 6.87
  7. Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli Vindás/stóðhestaval 6.9 6.8 6.1 6.9 6.9 = 6.87
  8. Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík Hringdu 6.9 7.2 6.9 6.4 6.7 = 6.83
  9. Reynir Örn Pálmason Agnar frá Margrétarhofi Hringdu 7.2 7.1 6.4 6.3 6.9 = 6.80
  10. Þorvaldur Logi Einarsson Saga frá Kálfsstöðum Kidka/hestakofi 6.5 6.9 6.8 6.8 6.8 = 6.80
  11. Þórdís Inga Pálsdóttir Jarl frá Skúfsstöðum Hrímnir 6.7 6.9 6.6 6.7 6.4 = 6.67
  12. Helgi Þór Guðjónsson Þröstur frá Kolsholti 2 Horseday 6.9 6.4 6.3 6.5 6.7 = 6.53
  13. Anna Valdimarsdóttir Ólsen frá Egilsá Horseday 6.5 6.5 6.9 6.6 6.4 = 6.53
  14. Hulda Sveinbjörnsdóttir Lifri frá Lindarlundi Vindás/stóðhestaval 6.3 6.7 5.6 6.8 6.5 = 6.50
  15. Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir Hrafn frá Ytri-Skógum Hrímnir 6.8 6.1 6.2 5.9 6.8 = 6.37
  16. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Ófeigur frá Þingnesi Tommy Hilfinger 6.1 6.5 6.1 6.4 6.6 = 6.33
  17. Ólöf Rún Guðmundsdóttir Hraundís frá Selfossi Tommy Hilfinger 6.3 6.3 6.2 6.6 6.2 = 6.27
  18. Anna Björk Ólafsdóttir Spenna frá Bæ Sportfákar 6.2 6.2 6 6.5 6.2 = 6.20
  19. Haukur Bjarnason Losti frá Skáney Kidka/hestakofi 6.2 6.3 6 5.6 6.5 = 6.17
  20. Friðdóra Friðriksdóttir Hallsteinn frá Hólum Horseday 6.4 6.3 6 5.6 6.1 = 6.13
  21. Birna Olivia Ödqvist Hrafn frá Oddsstöðum I Vindás/stóðhestaval 6.3 5.4 6 6.2 6.2 = 6.13
  22. Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi 1 Sportfákar 5.5 6.4 6 6.7 5.5 = 5.97
  23. Rakel Katrín Sigurhansdóttir Heiða frá Skúmsstöðum Tommy Hilfinger 5.9 5.9 5.3 5.6 5.9 = 5.80
  24. Sigrún Högna Tómasdóttir Rökkvi frá Rauðalæk Hringdu 5.5 4.9 5.3 5.8 5.4 = 5.40

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar