Kynbótasýningar í Svíþjóð á EiðfaxaTV
Samningar hafa náðst milli Eiðfaxa og sænska ræktunarsambands íslenska hestsins, SIF Avel, um upptökur á kynbótasýningum ársins þar í landi. Í Svíþjóð eru sýnd 2-300 hross árlega í kynbótadómi og er Svíþjóð það land utan Íslands þar sem alla jafna flest hross eru sýnd í kynbótadómi.
Kynbótasýningar í Svíþjóð hafa verið kvikmyndaðar síðan árið 2020 og að tveimur árum frátöldum hefur sænska félagið sjálft séð um upptökurnar. Innifalið í samningnum nú er að þær upptökur sem sænska félagið hefur sjálft séð um verða gerðar aðgengilegar á EiðfaxaTV. Það eru því upptökur af hartnær 800 hrossum sem munu bætast við safnið á eiðfaxa tv á næstu misserum.
Þessi samningur bætir enn einni rós í hnappagat EiðfaxaTV en auk þéttskipaðrar vetrardagskrár bíður vorið og sumarið með fjöldaviðburða sem sýnt verður frá.
Þar má nefna að nú verða því bæði kynbótasýningar á Íslandi og Svíþjóð í sýningu á EiðfaxaTV og því getur áhugafólk um ræktun íslenska hestsins farið að láta sig hlakka til vorsins.
Fyrirhugaðar kynbótasýningar í Svíþjóð árið 2026.
| Dagsetning | Staður |
| 24.–26. maí | Margaretehof |
| 27.–29. maí | Romme |
| 12.–14. júní | Axevalla |
| 25.–26. júlí | Toftinge |
| 21.–23. ágúst | Axevalla |
HÉR ER HÆGT AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ EIÐFAXA TV
Eiðfaxi TV er aðgengilegt á vefnum, í snjallsímum, Apple TV, Android TV, Google TV og Amazon Fire TV.
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Erla og Þorvaldur sigurvegarar fjórgangsins