Magnús Benediktsson heiðraður á Bessastöðum

  • 19. mars 2026
  • Fréttir

Okkar eini sanni Maggi Ben heiðraður á Bessastöðum í dag

Samstaða hestamanna lætur gott af sér leiða í íslensku samfélagi.

Mikill heiður féll Magnúsi Benediktssyni, Eiðfaxa og hestamennskunni í heild sinni í  skaut í dag þegar Magnús Benediktsson, einn helsta driffjöður Eiðfaxa, hlaut sérstaka viðurkenningu á Bessastöðum. Viðurkenningin var veitt fyrir ómetanlegt framlag hestamanna til Minningarsjóðs Bryndísar Klöru, en Magnús hefur um árabil verið í fararbroddi fyrir góðgerðasöfnun hestamanna.

Tæpar 90 milljónir til góðgerðamála
Saga þessa góða starfs teygir sig allt aftur til ársins 2009 þegar fyrsta Stóðhestaveislan var haldin. Frá árinu 2011 hefur verið hefð fyrir því að safna fyrir verðug málefni samhliða viðburðinum, með sérstaka áherslu á málefni barna. Árangurinn er vægast sagt glæsilegur en samtals hafa hestamenn safnað tæpum 90 milljónum til hinna ýmsu góðgerðamálefna

Magnús hefur ávallt lagt áherslu á að þessi árangur sé samvinnuverkefni margra. Auk liðsinnis Eiðfaxa og Hrossaræktar, hafa lykilmenn á borð við Snorra Kristjánsson, Guðbrand Stíg Ágústsson og Huldu G. Geirsdóttur unnið náið með Magnúsi ásamt fjölda annarra sem hafa gefið vinnu sína og tíma.

Næsta Stóðhestaveisla handan við hornið
Það er hvergi slegið af í góðverkunum. Næsta Stóðhestaveisla fer fram þann 28. mars næstkomandi. Þar mun ný styrktarsöfnun hefjast og að þessu sinni munu framlögin renna til krabbameinssjúkra barna.

„Það er ómetanlegt að sjá hvað fólk getur gert saman,“ segir í færslu sem Rakel Ýr, eiginkona Magnúsar ritaði við tækifærið og ljóst er að samstaða hestamanna heldur áfram að láta gott af sér leiða í íslensku samfélagi.

Magnús Benediktsson, Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Rakel Ýr Björnsdóttir á Bessastöðum

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar