Suðurlandsdeildin Lokakvöld Suðurlandsdeildar Eques framundan!

  • 6. apríl 2026
  • Fréttir
Keppt í tölti og flugskeiði

Það stefnir í spennandi og skemmtilegt lokakvöld í Suðurlandsdeild Eques næstkomandi þriðjudag, 7. apríl. Keppt verður í tveimur greinum í Rangárhöllinni: 100 metra flugskeið og Tölt T3.

Suðurlandsdeildin fagnar nú 10 ára starfsafmæli sínu og hefur sjaldan verið jafn mjótt á mununum í liðakeppninni fyrir lokasprettinn. Eftir fjórar greinar af sex leiðir lið Árbakka/Árbæjarhjáleigu með 202 stig, en lið Vöðla/Snilldarverka fylgir fast á eftir með 193 stig. Ljóst er að hver einasta sekúnda í skeiðinu og hver einkunn í töltinu mun telja í baráttunni um það hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari ársins.

Veislukostur í höllinni

Eins og alltaf verður mikið lagt í umgjörðina og hestaáhugamenn hvattir til að mæta. Húsið opnar klukkan 17:30 og verður boðið upp á ekta íslenskar kótilettur frá SS með öllu tilheyrandi í veitingasölunni. Tilvalið er að mæta snemma, gæða sér á kótilettum og hita upp fyrir keppnina sem hefst á slaginu 18:30.

Ráslistar og keppendur

Búist er við hörkukeppni í öllum flokkum. Hér fyrir neðan má sjá ráslista kvöldsins.

Tölt
Holl At/Á Knapi Hestur Lið
1 Á Þórdís Sigurðardóttir Árvakur frá Minni-Borg Raflagnaþjónusta Selfoss
1 Á Nanna Jónsdóttir Pabbastelpa f. Ásmundarst. 3 Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
2 At Ingibjörg Sóllilja Baltasarsd. Hrafn frá Vatni Húsasmiðjan
2 At Svanhildur Guðbrandsdóttir Stígur frá Hörgslandi II Krappi
3 Á Hulda Jónsdóttir Dökkvi frá Miðskeri Hestefli
3 Á Sarah Maagaard Nielsen Djörfung frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir
4 At Halldór Snær Stefánsson Lipurtá frá Forsæti Kastalabrekka
4 At Hulda Gústafsdóttir Flauta frá Árbakka Árbakki/Árbæjarhjáleiga
5 Á Hinrik Ragnar Helgason Freyr frá Bakkakoti Bakkakot
5 Á Hannes Brynjar Sigurgeirss. Eldon frá Varmalandi Vöðlar/Snilldarverk
6 At Malin Marianne Andersson Vígur frá Einiholti Wicked viking
6 At Katrín Eva Grétarsdóttir Bjartur frá Hlemmiskeiði 3 Raflagnaþjónusta Selfoss
7 Á Pernilla Therese Göransson Bylur frá Kvíarhóli Húsasmiðjan
7 Á Jóhann G. Jóhannesson Hafdís frá Brjánsstöðum Hestefli
8 At Alma Gulla Matthíasdóttir Ágúst frá Hrauni Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
8 At Sigurður Sigurðarson Þróttur frá Hvammi Krappi
9 Á Anne Röser Lokkadís frá Þóreyjarnúpi Kastalabrekka
9 Á Edda Hrund Hinriksdóttir Hringjari frá Efri-Fitjum Árbakki/Árbæjarhjáleiga
10 At Davíð Jónsson Hetja frá Skeiðvöllum Miðkot/Skeiðvellir
10 At Hekla Rán Hannesdóttir Tindur frá Árdal Bakkakot
11 Á Þórunn Helga Sigurðardóttir Tignar frá Egilsstaðakoti Wicked viking
11 Á Elín Hrönn Sigurðardóttir Framsýn frá Skeiðvöllum Vöðlar/Snilldarverk
12 At Guðmunda Ellen Sigurðard. Hjaltalín frá Sumarliðabæ 2 Hestefli
12 At Eygló Arna Guðnadóttir Hamingja f. Þúfu í Landeyjum Raflagnaþjónusta Selfoss
13 Á Lilja Hrund Pálsdóttir Reykur frá Prestsbakka Húsasmiðjan
13 Á Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Dreyri frá Hjaltastöðum Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
14 At Fríða Hansen Vargur frá Leirubakka Kastalabrekka
14 At Jón Ársæll Bergmann Dimmir frá Varmalæk Bakkakot
15 Á Kristinn Karl Garðarsson Beitir frá Gunnarsstöðum Krappi
15 Á Arney Ólöf Arnardóttir Barón frá Herríðarhóli Árbakki/Árbæjarhjáleiga
16 At Ásmundur Ernir Snorrason Þróttur frá Syðri-Hofdölum Vöðlar/Snilldarverk
16 At Guðmann Unnsteinsson Ýmir frá Kílhrauni Wicked viking
17 Á Emma Goltz Bragi frá Reykjavík Raflagnaþjónusta Selfoss
17 Á Soffía Sveinsdóttir Skuggaprins frá Hamri Miðkot/Skeiðvellir
18 At Bjarney Jóna Unnsteinsd. Hrafn frá Ytri-Skógum Hestefli
18 At Sigríkur Jónsson Hrefna frá Efri-Úlfsstöðum Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
19 Á Hallgrímur Birkisson Amalía frá Þjóðólfshaga 1 Krappi
19 Á Rúnar Freyr Rúnarsson Styrkur frá Stokkhólma Bakkakot
20 At Selina Bauer Sónata frá Strandarhöfði Húsasmiðjan
20 At Ólafur Ásgeirsson Fengsæll frá Jórvík Vöðlar/Snilldarverk
21 Á Jónas Már Hreggviðsson Bjartur frá Eyrarbakka Wicked viking
21 Á Kolbrún Jónsdóttir Kvika frá Stóra-Hofi Kastalabrekka
22 At Gústaf Ásgeir Hinriksson Bútur frá Litla-Dal Árbakki/Árbæjarhjáleiga
22 At Ólafur Þórisson Sólbirta frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir

 

Skeið
Holl At/Á Knapi Hestur Lið
1 Á Aasa Ljungberg Rangá frá Torfunesi Vöðlar/Snilldarverk
2 At Ólafur Þórisson Kiljan frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir
3 Á Malou Sika Bertelsen Höfði frá Bakkakoti Kastalabrekka
4 At Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Krappi
5 Á Jóhann G. Jóhannesson Klaustri frá Hraunbæ Hestefli
6 At Malin Marianne Andersson Lukka frá Syðra-Langholti Wicked viking
7 Á Hinrik Ragnar Helgason Stirnir frá Laugavöllum Bakkakot
8 At Gústaf Ásgeir Hinriksson Bríet frá Austurkoti Árbakki/Árbæjarhjáleiga
9 Á Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Von frá Ási 1 Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
10 At Sigríður Ingibjörg Einarsd. Örn frá Margrétarhofi Húsasmiðjan
11 Á Emma Goltz Fiðla frá Kolsholti 2 Raflagnaþjónusta Selfoss
12 At Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II Vöðlar/Snilldarverk
13 Á Theodóra Jóna Guðnadóttir Brúskur f. Þúfu í Landeyjum Miðkot/Skeiðvellir
14 At Dagbjört Skúladóttir Náma frá Stóra-Hofi Kastalabrekka
15 Á Hallgrímur Birkisson Mórall frá Hlíðarbergi Krappi
16 At Guðmunda Ellen Sigurðard. Hátíð frá Sumarliðabæ 2 Hestefli
17 Á Jónas Már Hreggviðsson Litla-Ljót frá Litlu-Sandvík Wicked viking
18 At Jón Ársæll Bergmann Gullborg frá Læk Bakkakot
19 Á Arney Ólöf Arnardóttir Jarl frá Kílhrauni Árbakki/Árbæjarhjáleiga
20 At Alma Gulla Matthíasdóttir Tesla frá Skyggnisholti Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
21 Á Pernilla Therese Göransson Lukka frá Hvalnesi Húsasmiðjan
22 At Þorgils Kári Sigurðsson Flugdís frá Kolsholti 3 Raflagnaþjónusta Selfoss

Staðan í liðakeppninni fyrir lokakvöldið:

Árbakki/Árbæjarhjáleiga – 202

Vöðlar/Snilldarverk – 193

Hestefli – 186

Miðkot/Skeiðvellir – 173

Krappi – 164

Bakkakot – 160

Raflagnaþjónusta Selfoss – 157

Húsasmiðjan – 145

Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás – 123

Kastalabrekka – 123

Wicked viking – 119

Við hvetjum alla hestaáhugamenn til að mæta í Rangárhöllina, upplifa stemninguna og sjá hverjir standa uppi sem sigurvegarar á þessu 10 ára afmælisári deildarinnar!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link