Eiðfaxi TV Happadrætti Stóðhestaveislunnar

  • 27. apríl 2026
  • Fréttir
Enn eru til happdrættismiðar frá því á Stóðhestaveislunni.

Það hefur verið okkur hestamönnum mikill sómi að því að láta gott af okkur leiða og styrkja gott málefni á Stóðhestaveislu og af því eigum við að vera stolt. Happadrætti Stóðhestaveislunnar er hluti af söfnuninni og hófst sala á miðum á veislunni sjálfri, laugardaginn 5. apríl, en dregið verður út 1. maí.

Enn eru til happdrættismiðar frá því á Stóðhestaveislunni. Miðinn kostar 1.000 kr sem rennur óskipt til góðs málefnis. Hægt er að senda á eidfaxi@eidfaxi.is til að kaupa miða.

Margir flottir vinningar eru komnir á listann t.d. folatollar, út að borða, hótelgisting, vikupassi á Landsmót o.fl. Hægt er að sjá vinningana hér fyrir neðan:

Allur ágóði af söfnunni rennur til styrktarfélags Krabbameinssjúkra barna en SKB var stofnað 1991 til að styðja við bakið á krabbameinsveikum börnum og fjölskyldum þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega, og til að berjast fyrir réttindum þeirra gagnvart hinu opinbera.

„Á þeim vettvangi hefur náðst mikill árangur en enn er mikil þörf fyrir ýmiss konar stuðning. Það er áfall fyrir alla fjölskylduna þegar einn greinist með krabbamein og hún er allt í einu komin í stöðu sem enginn vill nokkurn tíma þurfa að vera í. Yfirleitt hættir a.m.k. annað foreldrið að vinna um tíma til að sinna veika barninu og verður fjárhagslegt áfall því í flestum tilvikum tilfinnanlegt.“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link