Kvöldstund með meisturum
Laugardagskvöldið 17. desember stendur Félag tamningamanna fyrir fræðslukvöldi með margföldum meisturum, þeim Jóhanni R. Skúlasyni og Rúnu Einarsdóttur-Zingsheim sem flytja fyrirlestur um þjálfun og uppbyggingu hrossa og veita gestum innsýn í sínar vinnuaðferðir.
Einstakt tækfifæri fyrir hestamenn til að skyggnast í reynslubanka þessara margföldu meistara, en þau Jóhann og Rúna hafa bæði átt fast sæti í landsliðinu árum saman og unnið til fjölda heimsmeistaratitla.
Fræðslukvöldið verður haldið í Harðarbóli, félagsheimili Harðar í Mosfellsbæ og hefst kl. 18. Aðgangseyrir er kr. 1.500 – en frítt inn fyrir skuldlausa félaga í FT.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH