Æskan og hesturinn í Sörla 26. apríl

  • 21. apríl 2026
  • Fréttir
Frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir.

Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin sunnudaginn 26. apríl næstkomandi í nýrri og glæsilegri reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Þar koma fram efnilegustu hestamenn landsins og sýna afrakstur vetrarstarfsins og er óhætt að segja að sýningin sé hápunktur vetrarstarfsins hjá hinum ungu knöpum.

Hópar ungra hestamanna frá öllum hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu; Fáki, Herði, Mána, Spretti, Sóta og Sörla sýna fjölbreytt atriði sem þeir hafa æft í hverju félagi fyrir sig. Börn úr hestamannafélögunum Geysi og Þyt munu einnig koma í heimsókn og sýna listir sínar.

Sýningin hefst kl. 14:00. Frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir.

Sigurbjörn Bárðarson, tamningameistari mun setja sýninguna en sýningarstjórn er í höndum Hilmars Guðmannssonar.

Frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir. Að sýningu lokinni verður í boði að fara á hestbak hjá Íshestum, en þar verður teymt undir börnum sem vilja prófa að fara á hestbak.

Hægt er a fylgja viðburðinum á facebook með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link