Hæsta einkunn samkvæmt lista FEIF í gæðingaskeiði

  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Laura Enderes og Fannar á HM2025 Ljósmynd: Henk & Patty

Laura og Fannar slógu einkunnamet á Kronshof

Á sterku alþjóðlegu WorldRanking móti sem fram fór á Kronshof í Þýskalandi um síðustu helgi leit dagsins ljós hæsta einkunn sem gefin hefur verið í gæðingaskeiði á slíku móti í sögunni, alltént frá því að FEIF hóf að halda utan um opinberar einkunnagjafir.

Áður hefur Magnús Skúlason á skeiðsnillingnum Völsu frá Brösarpsgården hlotið 9,50 í gæðingaskeiði en sá árangur er ekki skráðu hjá FEIF.*

Það voru þau Laura Enderas og Fannar von der Elschenau sem sýndu ótrúlega takta, en heildareinkunn þeirra úr báðum sprettum var hvorki meira né minna en 9,29. Fyrir fyrri sprettinn hlutu þau 9,17 og tókst þeim að hækka sig enn frekar í þeim síðari þar sem einkunin var 9,42. Laura og Fannar eru reynt og afar sigursælt par í þessari grein, en þau urðu m.a. heimsmeistarar í gæðingaskeiði á síðasta Heimsmeistaramóti.

Gæðingar í ættartrénu

Fannar er orðinn 16 vetra gamall og á ekki langt að sækja skeiðgetuna og rýmið enda m.a. ættaður út af miklum skörungs hrossum. Hann er undan Hrannari vom Schloßberg, sem er sonur Hrafns vom Schloßberg (undan Hlyni frá Kjarnholtum). Móðir Hrannars er Frakka frá Skammbeinsstöðum III, sem var undan heiðursverðlaunahanum Feyki frá Hafsteinsstöðum.

Móðir Fannars er Fluga frá Hvolsvelli, ræktuð af Þormari Andréssyni. Fluga er undan Pilti frá Sperði og Skvettu frá Vatnsdal. Fluga hefur reynst ágætlega í ræktun, en undan henni er einnig stóðhesturinn Farsæll von der Elschenau sem hlaut háan kynbótadóm á sínum tíma.

Þetta er glæsilegur og sögulegur árangur hjá Lauru og Fannari.

*Fréttin hefur verið uppfærð með nýjum upplýsingum um árangur Magnúsar og Völsu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link