Dalvar frá Efsta-Seli seldur til Svíþjóðar
Dalvar frá Efsta-Seli, sýnandi Daníel Jónsson Mynd: Óðinn Örn Jóhansson
Stóðhesturinn Dalvar frá Efsta-Seli hefur skipt um eigendur en Josephine Williams verður skráð eigandi hestsins og mun Dalvar tilhera ræktunarstarfi Paceland en að henni standa Josephine ásamt Martina Williams og James Faulkner.
Það var Hestamagasin sem greindi fyrst frá sölunni en hugmyndin að kaupunum kviknaði í fyrra þegar þau hjá Paceland, sem þegar á stóðhestinn Eldjárn frá Skipaskaga, fóru að leita að öðrum stóðhesti sem gæti fært þeim eitthvað nýtt inn í ræktunina. Stóðhesti, sem líkt og Eldjárn, kæmi með nýtt blóð í hrossaræktina erlendis. Eftir að hafa skoðað ýmsa möguleika var það James Faulkner sem stakk upp á Dalvari.
Kaupin gengu í gegn áður en Dalvar var sýndur í kynbótadómi nú í vor.
Þrátt fyrir eigendaskiptin verður Dalvar áfram á Íslandi næstu tvö til þrjú árin. Dalvar var fyrst og fremst keyptur sem stóðhestur til undaneldis, en Josephine útilokar ekki að keppnisferill gæti bæst við í framtíðinni. Hún segir jafnframt að kaupin geta orðið leikbreytir fyrir ræktunina hjá Paceland og að nýtt blóð af þessu tagi sé það besta sem gæti komið fyrir sænska íslandshestarækt.
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Tinni slær heimsmet
Gistimöguleikar fyrir gesti Landsmóts