Landsmót „Þetta eru langir dagar“

  • 6. júlí 2026
  • Fréttir

Blaðamaður náði á Þorgeir þar sem hann var að leggja á Frakk frá Flagbjarnarholti

Það er í mörgu að snúast hjá Þorgeiri Ólafssyni á Landsmótinu 

Þorgeir er með 28 hross á Landsmótinu, 25 hross sýnir hann í kynbótadómi og hin þrjú keppir hann á í A flokki, B flokki og 150 m. skeiði. Þorgeir hefur farið mikinn á kynbótabrautinni það sem af er ári og sýndi í vor 99 fullnaðardóma því eflaust ekki að undra að hann sé með flest kynbótahross á mótinu. Þorgeir segir að það fari vel um þau á Landsmótinu og er ánægður með mótssvæðið.

„Við fengum pláss fyrir 20 hross á svæðinu og svo er restin aðeins á dreifð en alls ekki langar vegalengdir á milli sem er ágætt. Mér líst mjög vel á mótssvæðið. Vellirnir eru að verða góðir eftir rigninguna og þetta lítur vel út.“

Gott skipulag lykilinn

Það er að mörgu að huga þegar maður er svo mörg hross á mótinu sem þarf að sinna og þá skiptir miklu máli að vera með gott aðstoðarfólk til að láta hlutina ganga upp.

„Þetta eru langir dagar og þú verður fyrst og fremst að vera með mjög gott skipulag á þessu. Það verður að vera nr. 1, 2 og 3 og ég sé ekki um það. Ég er heppinn að vera með fullt af góðu fólki í kringum mig sem sér um þau mál. Ég þarf bara að hugsa um að sitja á hestunum meðan aðrir hugsa um að láta þetta ganga.“

Æfingar gengið misvel

Þorgeir er að sýna nokkur kynbótahross í dag og síðan er framundan forkeppni í A flokki og B flokki gæðinga en þar situr hann þá Leyni frá Garðshorni á Þelamörk og Steinn frá Stíghúsi. Leynir endaði annar í A flokknum á síðasta Landsmóti og koma þeir næst efstir inn á mót á stöðulista.“

„Ég er mjög spenntur fyrir keppninni. Æfingar eru búnar að ganga upp og ofan en það er bara fínt að það sé ekki búið að ganga of vel þá er maður á tánum. Ég fer alltaf með það í huganum að gera það besta með hvern einstakling og reyna að ná sem mestu og bestu úr úr hverjum hesti og vona að það dugi. Ég er bara spenntur fyrir næstu dögum.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link