Járninganámskeið framundan
Nú fer að styttast í vetrartíðina, margir huga eflaust að því að taka inn hrossin inn. Væri ekki afbragðshugmynd að skella sér á járninganámskeið?
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður nú upp á eftirfarandi námskeið:
Járning og hófhirða I
Námskeiðið er einkum ætlað bændum, hrossaræktendum og áhugamönnum.
Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest/hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10.
Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi á Oddsstöðum.
Tími: Lau. 10. des, kl. 10:00-18:00 og sun. 11. des, kl. 9:00-16:00 (19,5 kennslustundir) í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum.
Verð: 22.900kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar).
Skráningar: [email protected] eða s: 433 5000. Fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5200 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590.
Járning og hófhirða I
Endurmenntun LbhÍ í samstarfi við Hestamannafélag Gusts og Andvara
Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest/hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10.
Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi á Oddsstöðum.
Tími: Bóklegt þri. 24. jan. kl 20:00-22:00, bóklegt fös. 27. jan. kl 17.00-19.00 og verklegt lau. 28. jan kl 09:00-17:00 (16,5 kennslustundir) á Kjóavöllum. Bóklegt er kennt í samkomusal reiðhallar Gusts í Glaðheimum.
Verð: 18.500 fyrir skuldlausa félagsmenn Gusts/Andvara. Ef sæti verða laus fyrir aðra er verðið 22.900 kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar).
Skráningar: [email protected] eða s: 433 5000. Fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5200 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH