Síðasti skráningadagur á Ístölt Austurland

  • 20. febrúar 2013
  • Fréttir
Síðasti skráningadagur á Ístölt Austurland

 

 
„Í dag fer í hönd síðasti skráningardagur á Ístölt Austurland 2013, árlega veislu hestamanna á Austurlandi. Eins og undanfarin ár fer mótið fram á Móavatni við Tjarnarland skammt frá Egilsstöðum. Kunnir keppnismenn hafa boðað komu sína og verður án efa barist hart um Ormsbikarinn eftirsótta, auk fleiri glæsilegra verðlaunagripa á mótinu.
 
Keppt er í eftirtöldum flokkum:
 
Tölt 16 ára og yngri
Tölt áhugamanna
Tölt opin flokkur
A-flokkur
B-flokkur
 
Skráning fer fram á [email protected] og hjá Sigurbjörgu í síma 849-9370. Skráningargjald á hverja skráningu er kr. 2.500,-  Leggja skal skráningargjöld inn á reikning Freyfaxa, nafn knapa komi fram sem skýring. Bankaupplýsingar eru eftirfarandi: Kennitala: 470482-0449 Bankanúmer: 305-26-4704,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link