„Fyrir mér eru þetta einfaldlega fallegustu hestar í heimi“

  • 18. október 2026
  • Fréttir

Yfir Hópið. Ljósmyndir: Carolin Giese

Listin og íslenski hesturinn: Manneskjan að baki Lina Images

Inni á Instragram-aðgangnum – @LinaImages – birtast reglulega ljósmyndir af íslenskum hestum í kynngimagnaðri náttúru, byljandi snjóhríð, sandstormi eða undir dansandi norðurljósum. Myndirnar hafa vakið verðskuldaða athygli, lof og nokkrar þeirra hlotið alþjóðleg verðlaun. Afrakstur Lina Images er því mörgum kunnur – en færri vita hver heldur um vélina.

Carolin Giese

Manneskjan að baki Lina Images heitir Carolin Giese (Lína). Á uppvaxtarárunum í Berlín, Þýskalandi, fór Lína í reiðskóla á íslenskum hestabúgarði og þá varð ekki aftur snúið. Hún lærði í kjölfarið hestafræði og starfaði við þjálfun íslenskra hesta úti í Þýskalandi. Lína átti sér lengi þann draum að fara til Íslands og upplifa hestinn í sínu eigin umhverfi.

„Þegar ég kom loks hingað og sá íslenska hestinn í þessu landslagi, veðri og í stórum stóðum, þá fyrst fannst mér ég skilja hann.“

Hestar undir dansandi norðurljósum. 

Landslagið hluti af sögu myndarinnar

Lína lærði ljósmyndun upp á eigin spýtur og hægt og rólega varð sú iðja ofan á. Við lok árs 2019 flutti hún til Íslands og frá árinu 2021 hefur hún unnið í fullu starfi sem ljósmyndari.

„Ég sinni ýmsum verkefnum, tek myndir fyrir einstaklinga, til dæmis af hestum fyrir útflutning svo eigendurnir eignist fallegar myndir af hestinum á Íslandi. Þá vinn ég við vöru- og auglýsingamyndatökur fyrir fyrirtæki, sel eftirprent af ljósmyndum mínum og held námskeið. Ég er svo lánsöm að hafa frelsi til að mynda íslenska hesta á fallegum og sérstökum stöðum úti í náttúrunni. En fyrir mér snýst þetta ekki bara um að setja hest fyrir framan flottan foss eða fallegt fjall. Ég reyni frekar að finna stað, birtu og aðstæður sem passa við hestinn og karakterinn hans. Landslagið er því ekki bara bakgrunnur heldur hluti af sögunni.“

Verkefnin eru fjölbreytt og margvísleg en eru einhver þeirra í meira uppáhaldi en önnur?

„Allra skemmtilegast finnst mér að ljósmynda hestana frjálsa úti í haga, í stórum stóðum, í hestaferðum á sumrin eða í réttum á haustin. Það er eiginlega ekkert sem veitir mér meiri innblástur en að vera úti í íslenskri náttúru með hestunum.
 Það hljómar kannski mjög rómantískt – að minnsta kosti þangað til veðrið versnar.“

Stóðið.

Baráttan við íslenska veðrið

Lína þarf ekki aðeins að glíma við lifandi skepnur og hverfula birtu heldur ekki síst íslenska veðráttu. Hefði hún kannski betur valið sér að starfa nær miðbaug?

„Aðstæðurnar hér á Íslandi eru auðvitað ekki þær auðveldustu, en það er líka stór hluti af spennunni. Stundum líður mér eins og ljósmyndun sé bara hálft verkefnið – hinn helmingurinn er að halda mér heitri, þurri, standandi eða á hestbaki og passa að

Hestur á útigangi. 

myndavélin (og ég) lifi þetta allt af. Og það fyndna er að uppáhalds aðstæður mínar eru ekki sérlega þægilegar fyrir mig sjálfa. Stundum er þetta mikil áskorun og alvöru líkamsrækt – að reyna að halda á myndavélinni í íslensku roki, finna varla fyrir fingrunum og á sama tíma ná rétta augnablikinu. En oft eru það einmitt þessar aðstæður sem gefa mér uppáhalds myndirnar mínar. Ég nefnilega elska veturinn, sérstaklega að taka myndir í snjóstormi. Mér finnst alltaf magnað að sjá hvað hestarnir taka svona veðri af mikilli ró og styrk. Og einmitt við svona aðstæður sést tengingin á milli hestsins og landslagsins svo vel.“

Hesturinn alltaf í aðalhlutverki

Í myndum Línu spilar landslagið veigamikið hlutverk en hún vill ekki að það nái yfirhöndinni. Fyrir henni er náttúran fremur þjónn hestsins þegar hún smellir af.

„Mér finnst skemmtilegast þegar náttúran fær að vera hluti af myndinni – vindur, rigning eða snjór í feldinum, mjúk birta og frekar rólegir og „múdí“ litir. Ég elska auðvitað líka falleg sólsetur, en stundum verða þau einfaldlega of litrík og taka of mikla athygli frá hestinum. Hesturinn á alltaf að vera aðalatriðið í myndinni hjá mér.“

Stóðið

En hvað er það við stóðið sem hreyfir svo við Línu?

„Mér finnst það stór hluti af því sem gerir íslenska hestinn svona spennandi. Að sjá marga hesta saman, hvernig þeir hreyfa sig, eiga samskipti og finna öryggi hver hjá öðrum segir svo mikið um þá. Ef maður gefur sér tíma til að fylgjast með sér maður alls konar litlar sögur – vináttu, nánd, samskipti og sérstök augnablik á milli einstakra hesta. Þar get ég leikið mér endalaust með form, liti, línur, skerpu og óskerpu og búið til mjög ólíkar myndir úr sömu aðstæðum.“

Stormur á Mælifellssandi. 

Hestaferðirnar – með vélina á baki

Undir lok sumars lenti hópur Hekluhesta í miklum sandstormi á Mælifellssandi. Innan úr miðjum rekstri birtust myndir sem voru því sem næst yfirnáttúrulegar. Nokkrir netverjar töldu myndirnar tilbúnar af gervigreind en svo reyndist ekki vera. Þar hélt Lína um vélina og skaut allt í kringum sig í baráttu við sumar-hálendisveðrin eins og þau gerast verst.

Við Seyðishóla. 

„Já, ekkert toppar hestaferðirnar á sumrin. Það getur vissulega verið mjög krefjandi að vera með myndavélina á baki, en það er alltaf þess virði. Þar hafa margar af mínum uppáhalds myndum orðið til; þegar ég get hreyft mig með stóðinu og tekið myndir frá sjónarhorni sem ég fengi aldrei af jörðinni. Ég fylgist ekki bara með hestunum utan frá heldur er ég inni í því sem er að gerast. Á sama tíma get ég auðvitað ekki stjórnað neinu. Ég þarf að treysta hestinum sem ég sit á og vinna með það sem gerist í kringum mig. En það er einmitt það sem mér finnst svo sérstakt við þessar myndir. Þetta eru raunveruleg augnablik sem er útilokað að endurskapa. Þessari tilteknu hestaferð með Hekluhestum mun ég aldrei gleyma. Stundum var svo mikill sandur í loftinu að við sáum varla neitt. Á svona augnablikum er ég ekki bara að ljósmynda – ég þarf að treysta hestinum algjörlega og leyfa honum að taka völdin. Í svona aðstæðum verður líka mjög fljótt ljóst hver veit betur hvað hann er að gera – og það er yfirleitt hesturinn.“

Margverðlaunuð

Ljósmyndir Línu hafa hlotið fjölmargar viðurkenningar, birst í virtum tímaritum og vakið athygli um allan heim.

„Það var sannanlega spennandi þegar myndir mínar birtust í Vogue Scandinavia árið 2025. Sem hestaljósmyndari er alls ekki sjálfsagt að fá svona mikla athygli í

Við Skógafoss.

stórum prent- og tískumiðli, þannig að ég var mjög þakklát fyrir tækifærið. Í byrjun þessa árs voru myndir eftir mig sýndar á sýningu í París, sem mér þótti líka mjög vænt um. Árið 2021 vann ég Fine Art Photography Awards í flokknum Nature/Wildlife, árið 2022 Annual Photography Awards, líka í Wildlife-flokki, og núna í ágúst fékk ég fyrstu verðlaun í International Photography Awards í flokknum Nature/Domestic Animals. Ég verð auðvitað mjög glöð yfir svona viðurkenningum en það sem mér finnst eiginlega ennþá skemmtilegra er að með þessu fái íslenski hesturinn og íslensk hestamenning meiri athygli erlendis. Mér finnst íslenski hesturinn og saga hans eiga hana skilið.“

Íslenski hesturinn fallegasti hestur í heimi

Að lokum er rétt að spyrja hvers vegna ung kona, fædd í Berlín í Þýskalandi, helgar líf sitt og starf því að mynda íslenska hestinn.

„Fyrir mér eru þetta einfaldlega fallegustu hestar í heimi. Íslenski hesturinn er svo tengdur landinu og sögunni hér. Þetta er hestur sem hefur lifað með fólki á Íslandi í meira en þúsund ár og þurft að aðlagast veðrinu, landslaginu og aðstæðunum. Mér finnst þessi blanda líka svo sérstök; þeir geta verið ótrúlega sterkir og sjálfstæðir en á sama tíma mjög félagslyndir, forvitnir og tengdir fólki. Svo eru það auðvitað gangtegundirnar, ótrúleg litafjölbreytni og hvað hver hestur hefur mikinn persónuleika. Frá ljósmyndalegu og listrænu sjónarhorni er íslenski hesturinn endalaust myndefni. Litirnir, faxið, hreyfingarnar, svipbrigðin og persónuleikinn gerir það að verkum að ég get farið aftur og aftur í svipaðar aðstæður og samt séð eitthvað nýtt. Með einum hesti get ég einbeitt mér að persónuleika hans. Með heilu stóði opnast allt annar heimur með formum, litum, hreyfingu og tengslum. Og ég vil líka sýna hvað við getum lært mikið af þeim. Hvernig þeir lifa í augnablikinu, treysta eðlisávísuninni, aðlagast aðstæðum og finna öryggi og styrk hver hjá öðrum. Því lengur sem ég fylgist með þeim, því meira finnst mér ég læra af þeim.
 Ég gæti alveg horft á og myndað þessa hesta endalaust. Það er líklega ástæðan fyrir því að eftir nokkrar milljónir mynda finn ég ennþá ný myndefni alls staðar – og get greinilega ekki hætt.“

Við þökkum Línu kærlega fyrir að veita okkur innsýn í hugarheim sinn og listina sem hverfist um íslenska hestinn. Lesendur sem vilja kynnast verkum Línu geta skoðað þau á Instagram: lina_images eða á vefsíðunni: www.linaimages.com

Lína. Ljósmynd: Ann-Christin Vogler.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link