Fróðleg erindi á Haustfundi Hrossvest
Haustfundur Hrossaræktarsambands Vesturlands verður haldinn sunnudaginn 27. nóvember n.k. kl. 14.00 í Hótel Borgarnesi. Veitt verða verðlaun fyrir efstu kynbótahrossin í hverjum flokki og Ræktunarbú Vesturlands 2011 verður verðlaunað. Þá verða heiðursviðurkenningar veittar í fyrsta sinn.
Gestir fundarins verða Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ, sem fer yfir hrossaræktina s.l. sumar og Guðmar Auðbertsson, dýralæknir, sem flytur erindi um sæðingar og fósturvísaflutninga.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing