„Þetta er bara draumur minn að rætast!“

  • 22. október 2026
  • Fréttir

Strandarhöfuð í Vestur-Landeyjum. Mynd: Fanney Hrund Hilmarsdóttir

Heimsókn til nýrra staðarhaldara á Strandarhöfði

Undirrituð ekur framhjá hinu sögufræga fjalli Þríhyrningi. Hér er hann nánast óþekkjanlegur þeim sem þekkja hann úr vestri. Tvíhyrndur og tignarlegur gnæfir hann yfir Fljótshlíðinni og þegar beygt er niður í Vestur-Landeyjar birtast þeir eins og ljóslifandi; Flosi og menn hans, á flótta eftir frægasta bruna Íslandsbókmenntanna. Stefnan er tekin á Þríhyrning á þann góða felustað sem nú heitir Flosadalur efst á milli tinda.

Hugurinn hraðar sér til baka um rúm þúsund ár, kastar frá sér kyndli og kveikir á stefnuljósi til hægri. Framundan er reisulegt íbúðarhús, hesthús og reiðhöll. Um áratugabil var hér rekið farsælt ræktunarbú og tamningastöð í eigu Auðar Möller og Guðmundar Más Stefánssonar, síðari ár undir stjórn Ásmundar Ernis Snorrasonar og Stellu Sólveigar Pálmarsdóttur. Nú hefur orðið breyting á.

Til stendur að heimsækja nýja staðarhaldara að Strandarhöfði í Vestur-Landeyjum.

Nýtt hús, reiðhöll og heimabakaðar kleinur

Þau taka vel á móti mér, Hekla Rán Hannesdóttir og Jón Ársæll Bergmann. Þótt það sé deginum ljósara að hér megi engan tíma missa bjóða þau mér inn á kaffistofu. Ég fikra mig inn á milli John Dear dráttarvélar og hestakerru, meðfram einhvers konar lagnauppgreftri og vinnandi mönnum, smíðaverkfærum, tamningakonum og Ella á Skíðbakka. Það er ekki annað hægt en smitast af framkvæmdagleði við það eitt að ganga í bæinn. „Hvað stendur til?“ spyr ég.

„Það á að stækka stíurnar í hesthúsinu og byggja nýjar inni í reiðhöll,“ segir Jón Ársæll yfir öxlina þar sem hann skálmar inn ganginn. „Hún verður hesthús og svo í vor er stefnt að því að reisa nýja reiðhöll.“

Það eru ekki „einu“ framkvæmdirnar sem standa yfir. Bráðabirgðastíur hafa verið smíðaðar á milli hesthúss og reiðhallar, girðingavinna er í fullum gangi og lagður hefur verið 4 km reiðhringur inni á landi Strandarhöfuðs. „Er þetta ekki blautt?“ spyr ég.

„Þetta voru 420 flutningabílar af möl, held ég,“ segir Jón og kímir. „Enda er þetta svo gott sem malbiksfært allan hringinn.“

Hekla Rán á Tindi frá Árdal og Jón Ársæll á Viskusteini frá Íbishóli á Norðurlandamótinu í sumar. Mynd: Ásta Björk Friðjónsdóttir.

Inni á kaffistofu er boðið upp á heimabakaðar kleinur og kaffi. Jón drekkur þrjá bolla á meðan ég kem mér fyrir og ég finn strax hvað ég kann vel við þetta unga fólk sem drekkur kaffi en ekki Collab. Ég hef Jón þó grunaðan um að innbyrða ívið fleiri bolla á dag en Heklu, slíkur er munurinn á fasi þeirra: Jón, tifandi af orku á meðan af Heklu stafar djúp ró. Ætli þau séu hið fræga Yin og Yang?

Reiðtími sem leiddi til kaupa á stórbýli

Ég fæ mér kleinubita og vind mér í viðtalið: „Hvernig kom þetta til?“

„Það er nú frekar skemmtileg saga,“ segir Hekla, „sem byrjar á því að til okkar komu þýskar mæðgur á helgarnámskeið, Elisabeth og Veronica Grodon. Það var eiginlega bara tilviljun, við þekktum þær ekkert fyrir.“

Veronica, dóttir þeirra hjóna Elisabeth og Roman Grodon, hafði þá fengið mikinn áhuga á íslenskum hestum og Elisabeth fylgt í kjölfarið. Upp úr heimsókninni kviknaði enn meiri áhugi á Íslandi og í kjölfarið spurningar um hvort fjölskyldan ætti að finna sér athvarf hér um slóðir.

„Þetta byrjaði nú bara sem hugmynd um að kaupa land og byggja þar hús,“ segir Hekla. „Við buðumst til að hjálpa þeim við að finna eitthvað land hér á svæðinu. Síðan bættust við hugmyndir um hesthús en á sama tíma spurningar um hver ætti að hugsa um það. Svona þróaðist þetta áfram þar til í október í fyrra þegar við hittum Elisabeth sem þá var stödd á Íslandi. Við sýndum henni Strandarhöfuð ásamt þremur öðrum möguleikum. Þau buðu okkur síðan út til þeirra um jólin og þá var þetta endanlega ákveðið. Í febrúar gengu þau frá kaupunum og í vor var Strandarhöfuð afhent.“

Grodon fjölskyldan býr í Garmisch í Þýskalandi. Elisabeth er iðjuþjálfi og rekur sína eigin stofu. Roman er stofnandi og framkvæmdastjóri Orca Capital AG sem fæst við fjárfestingar. Fjölskyldan mun eiga gott athvarf í hinu reisulega íbúðarhúsi á Strandarhöfði en til stendur að byggja 100 fermetra hús fyrir þau Heklu og Jón.

Æðsti draumur tíu ára Jóns

Við vindum kvæði okkar í kross, úr framkvæmdur í hross. Hvernig lítur veturinn út?

„Við erum eins og stendur bara með pláss fyrir 35 hross og verðum eins og vanalega með tvær stelpur með okkur, við höfum verið heppin með þær,“ segir Hekla.

Síðasta vor og sumar sýndi Jón Ársæll samtals 53 hross í fullnaðardóm. Aðeins Þorgeir Ólafsson og Árni Björn Pálsson sýndu fleiri hross árið 2026. Ásamt því var Jón í toppbaráttu í Meistaradeild Líflands þar sem hann var í úrslitum í tölti, fimmgangi og slaktaumatölti sem hann sigraði. Þá áttu þau Hekla góðu gengi að fagna á Norðurlandamótinu í sumar þar sem þau tóku gull og silfur í B-flokki ungmenna.

„Það er ótrúlegt hvað þetta rennur miðað við hvað það er margt sem þarf að hugsa um í kringum þetta,“ bætir Jón við. „En við erum líka með gott starfsfólk, góðan dýralækni og svo auðvitað Ella.“ Þar á hann við Erlend Árnason járningameistara. „Elli mætir alltaf ef eitthvað er að og hjálpar okkur.“

Hekla Rán og Tindur frá Árdal. Mynd: Ásta Björk Friðjónsdóttir.

„Við bara gerum okkar besta og það hefur gengið vel,“ bætir Hekla við hógvær.

Ég leiði hugann að sjálfri mér um tvítugt, helst að glíma við heimanám og skemmtanir í röngum hlutföllum og hálfpartinn missi út úr mér: „Er ekki erfitt að bera alla þessa ábyrgð?“

„Þetta venst bara,“ segir Hekla og brosir svo yfirvegað að í mér róast allar taugar. Eða, þar til ég lít á Jón sem virðist í þann mund að takast á loft.

„Þetta er bara draumur minn að rætast,“ segir hann og ljómar. „Þegar ég var tíu ára dreymdi mig ekki um neitt annað en að verða kynbótaknapi! Þrettán ára sýndi ég svo fyrsta hrossið. Ég var alveg harðákveðinn og svo þrjóskur að ég gaf mig ekki fyrr en ég fékk mömmu og bróður minn til að skutla mér með merina upp á Gaddstaðaflatir. Og,“ segir hann og gleypir eina kleinu, „ég hækkaði hana. En ég var líka heppinn að Þorvaldur Árni, frændi minn, var þar staddur og gat gefið mér góð ráð.“

Jón Ársæll var þó fjarri því að ganga saddur frá þessari sýningu. Þörfin til að sýna óx og hægt og rólega eftirspurnin líka. Nú aðeins sjö árum eftir fyrstu kynbótasýninguna sýndi Jón hana Seytlu sína frá Íbishóli og Spörtu frá Eystra-Fróðholti í hæfileikaeinkunnirnar 9,22 og 9,35! Þar sannast hið fornkveðna að sannleikurinn er stundum lyginni líkari en lygasagan sjálf.

Jón Ársæll og Sparta frá Eystra-Fróðholti að hljóta 9,35 fyrir hæfileika! Mynd: Ásta Björk Friðjónsdóttir.

„Auðvitað var þetta langt sumar og brjálað að hugsa til þess að sýna fimmtíu og eitthvað sýningar,“ segir Jón. „Þetta er bara svo ógeðslega gaman – algjör draumur í dós!“

Ég þrái skyndilega heitar en nokkuð annað að gerast kynbótaknapi, svo mikill er eldmóðurinn og lífsgleðin sem stafar af Jóni. Augnabliki síðar man ég eftir hæfileikunum sem nauðsynlegt er að hafa til þess að gera það vel. Þessum eftirsóknarverðu „náttúruhæfileikum“ sem fólki er tíðrætt um í tengslum við reiðmennsku. Það varð þó snemma ljóst að hún var stór gjöfin sem lögð var í vöggu Jóns Ársæls.

Keppnistímabilið framundan

En hvernig lítur keppnistímabilið út? Verður einhver tími fyrir deildirnar mitt í öllum framkvæmdunum? Og hvernig verður hestakosturinn á Strandarhöfði í vetur?

„Ég verð í Fyrstu deildinni,“ segir Hekla. „Verð þar allavega með Viktor frá Hamarsey.“ „Þetta er frábær hestur,“ skýtur Jón inn í. „Það er virkilega gaman að ríða honum og svo stendur mjög þétt að honum. Ég held að þetta sé kynbótahestur.“ Hekla tekur undir það og bætir við: „Maður kemur alltaf glaður úr þjálfunarstund með honum.“

Þau Hekla og Viktor eiga það sameiginlegt að vera ræktuð af Ingu Cristinu Campos og Hannesi Sigurjónssyni. Það verður spennandi að fylgjast með þeim í vetur enda Viktor hátt dæmdur klárhestur með 9 fyrir tölt, brokk, hægt stökk, samstarfsvilja, fegurð í reið, hægt tölt, 9,5 fyrir fet og 10 fyrir prúðleika!

En hvað með Jón?

„Ég verð í Meistaradeildinni og allavega með þær Díönu og Seytlu. Svo eru hér nokkrar yngri hryssur sem verður alveg möguleiki að nota.“

Þær stöllur þarf vart að kynna. Jón sigraði slaktaumatöltskeppni Meistaradeildarinnar í fyrra á Díönu frá Bakkakoti og varð í fimmta sæti á Seytlu frá Íbishóli í fimmgangnum. En hvar er hestagullið Sparta um þessar mundir?

„Sparta er fylfull við Tinna frá Árdal, við Hekla fengum að halda henni.“ Jón hikar og verður hugsi. „Það verður tómlegt í hesthúsinu í vetur án hennar, hún er einstakasta hross sem ég hef nokkru sinni kynnst.“

Þau Hekla geta þó huggað sig við að eiga von á afkvæmi undan þessum mögnuðu tveimur heimsmethöfum. Ræktunin er því lofandi en auk Tinna héldu þau undir Svarta-Skugga frá Pulu, Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum og Herská frá Eystra-Fróðholti sem þau hafa mikla trú á og hlakka til að halda áfram með í vetur.

Inn á kaffistofu kemur tamningakona, næst smiður og að lokum Elli. „Eigum við ekki að taka einn hest í viðbót fyrir hádegi?“ spyr hann. Ég ákveð að haska mér svo ég verði ekki söguð, járnuð eða hringteymd, stend upp og þakka fyrir mig. Í sannleika sagt langar mig helst að rekja úr þeim Heklu og Jóni garnirnar í allan dag – svo opin eru þau og einlæg, lífsglöð og full af ástríðu.

Hjartnæm stund eftir sýninguna á Spörtu frá Eystra-Fróðholti. Mynd: Ásta Björk Friðjónsdóttir.

„Þú verður að koma þegar þetta er tilbúið,“ segir Jón þegar við kveðjumst. „Þetta verður flott.“

„Ég er ekki í nokkrum vafa um það,“ svara ég og þar með er það ákveðið.

Við hjá Eiðfaxa þökkum þeim Heklu Rán og Jóni Ársæli fyrir hlýjar móttökur og óskum þeim velfarnaðar á nýjum stað.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link