„Höfum stefnt að því í yfir 30 ár að rækta svona gæðing“

  • 22. október 2026
  • Fréttir

Blíða frá Bergi og Þorgeir Ólafsson á Landsmóti í sumar. Ljósmynd: Þórhildur Gunnarsdóttir

Kynbótahross ársins - Blíða frá Bergi

Alls voru sýndar 244 hryssur á Íslandi í ár í flokki sjö vetra og eldri í fullnaðardómi. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi er 8,06 og hlutu 145 þeirra einkunnina 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og þar með 1. verðlaun.

Hæst dæmda hryssan í þessum flokki er Blíða frá Bergi, en hún er jafnframt sú hryssa sem hæstan dóm hefur hlotið frá upphafi kynbótadóma. Hún hlaut hvorki meira né minna en 9,02 í aðaleinkunn á vorsýningu á Rangárbökkum, með 8,69 fyrir sköpulag og 9,20 fyrir hæfileika – þar á meðal úrvalseinkunnina 9,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið. Sýnandi hennar var Þorgeir Ólafsson.

Ræktendur og eigendur hennar eru þau Jón Bjarni Þorvarðarson og Anna Dóra Markúsdóttir. Eiðfaxi ræddi við þau til að fræðast meira um sögu þessa mikla gæðings.

Blíða er undan Ský frá Skálakoti og Rót frá Bergi. „Rót er undan Hríslu frá Naustum, sem hefur gefið okkur frábæra gæðinga, en faðir hennar er Kvistur frá Skagaströnd. Það er mikið Sauðárkróksblóð í Rót. Faðir Blíðu þarf svo vart að kynna, hann Ský frá Skálakoti , afburða gæðingafaðir. Við töldum að þessi blanda gæti skilað góðu með tilliti til útlits, ganghæfileika, vilja og geðslags,“ segja þau.

„Mamma, eru öll folöld svona blíð og góð?“

Aðspurð hvort einhver saga liggi að baki nafngiftarinnar segja þau svo vera: „Nafnið kom til þannig að Anna Dóra og Sól, dóttir okkar, fóru upp í fjall til að skoða nýfædda folaldið hjá Rót. Folaldið kom til Sólar, hún klappaði henni og sagði: ‚Mamma, eru öll folöld svona blíð og góð?‘ Þá segir Anna Dóra: ‚Væri ekki sniðugt að skíra hana Blíðu?‘“

Nafngiftin virtist passa henni vel og hún var eftirtektarverð fyrir útlit og geðslag í uppeldi. „Hún var strax eftirtektarverð sem folald; stór, faxmikil, hreyfingafalleg og með mikla reisingu. Því til viðbótar var hún alltaf svo spök og ljúf í allri umgengni. Við hýsum hvorki folöld né tryppi, þau ganga úti með mæðrum sínum til tveggja vetra aldurs. Við tökum þau þó inn veturgömul í nokkra daga og gerum þau bandvön. Til marks um geðslag hennar þá var hún orðin vel bandvön eftir aðeins tvo daga.“

Sól heilsar Blíðu sem folaldi. Ljósmynd úr einkasafni

Auðveld og auðmjúk í tamningu

Þetta úrvals geðslag fylgi henni svo þegar að tamningu kom: „Blíða var gerð vel reiðfær á fjórða vetri og tamdist mjög vel, var auðveld og auðmjúk. Hún bauð strax upp á mikið en við ákváðum að taka sem minnst út úr henni, teymdum hana mikið á hesti og ákváðum svo að stefna á að sýna hana þegar hún væri fimm vetra fyrir Landsmótið 2024.“

Blíða var í fríi frá vori fram að jólum þegar hún var tekin inn. „Hún var þjálfuð fram í miðjan apríl, en þá tekur Þorgeir Ólafsson við henni, sýnir í kynbótadómi og endar hún í 9. sæti í flokki 5 vetra hryssna á Landsmótinu. Eftir það fór hún í frí fram að áramótum, fer þá til Daníels Jónssonar sem sýndi hana svo um vorið og á Fjórðungsmóti Vesturlands, en þar stóð hún efst í 6 vetra flokki. Eftir gott frí eftir það tókum við hana inn um jólaleytið og ákváðum einfaldlega að njóta hennar undir hnakk. Við Jón Bjarni og Sól skiptumst á að þjálfa hana, okkur til mikillar ánægju og gleði.“

Blíða og Þorgeir á Landsmóti. Ljósmynd: KollaGr

Blíða átti þó eftir að gefa þeim ræktendum og eigendum meira en ánægju og gleðistundir í reiðtúrum, því hún gerði sér lítið fyrir og stóð efst í fimmgangi í Meistaradeildinni snemma á árinu: „Í ársbyrjun 2026 hefst það sem má kalla ævintýrið með hryssuna. Vegna breyttra aðstæðna hjá Þorgeiri Ólafssyni var hann að hesta sig upp fyrir Meistaradeildina. Hann vissi af og þekkti Blíðu, og úr varð að Jón Bjarni fór með hana til hans um 10. janúar. Nokkrum vikum síðar vinnur hann fimmgangskeppnina í Meistaradeildinni á henni.“

Eftir það var ekki aftur snúið og stefnan tekin enn hærra: „Þorgeir var alveg viss um að hann gæti riðið Blíðu yfir 9,00 í hæfileikum í kynbótadómi, svo stefnan var tekin á kynbótabrautina um vorið. Þau Þorgeir stóðu heldur betur við sitt; hún fékk 9,20 í hæfileikum og 9,02 í aðaleinkunn og þar með var heimsmet hryssna slegið.“

Blíða og Þorgeir á Landsmóti. Ljósmynd: KollaGr

Ástríða og ríkidæmi

Þrátt fyrir góð tilboð og mikla eftirspurn eftir Blíðu tóku eigendurnir þá ákvörðun að selja hana ekki: „Í yfir 30 ár höfum við stefnt að því að rækta svona gæðing sem uppfyllir allar okkar væntingar og hún Blíða stendur vel undir því. Ræktun hrossa og hestamennska er ástríða sem við eigum að leyfa okkur að njóta. Íslenski hesturinn og fjölskyldan er mesta ríkidæmið.“

Nýtt hlutverk bíður nú Blíðu næsta sumar, þ.e. að færa íslenska hrossastofninum gæðinga framtíðarinnar: „Blíðu var haldið undir gæðinginn Frakk frá Flagbjarnarholti. Það var gert í samráði við Þorgeir Ólafsson, en hann mun eiga folaldið til helminga við okkur.“

 

10 hæst dæmdu 7.vetra og eldri hryssur ársins

1.Blíða frá Bergi – 9,02
2.Sparta frá Eystra-Fróðholti – 8,94
3. Seytla frá Íbishóli – 8,90
4. Vala frá Vindási – 8,89
5. Hetja frá Ragnheiðarstöðum – 8,85
6. Ramóna frá Heljardal – 8,84
7. Hetja frá Hofi I – 8,81
8. Nóta frá Sumarliðabæ 2 – 8,78
9-10. Kempa frá Kjarnholtum I – 8,73
9-10. Þórdís frá Flagbjarnarholti – 8,73

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link