Er vandinn alltaf hjá hestinum?

  • 27. október 2026
  • Fréttir

Mette Mannseth, yfirreiðkennari við Háskólann á Hólum. Mynd: Úr myndasafni Eiðfaxa.

Í fyrstu grein af fjórum í nýrri greinaröð Eiðfaxa, „Knapinn sem íþróttamaður“, er sjónum beint að líkamsbeitingu knapans og áhrifum hennar á hestinn.

Við hestamenn leggjum mikla áherslu á þjálfun hestsins. Við viljum að hann sé sterkur, sveigjanlegur og í góðu jafnvægi. Við skoðum þessa þætti reglulega og metum hvað megi bæta.

En hvað með þann sem situr í hnakknum?

Getur verið að eitthvað sem við teljum veikleika hjá hestinum eigi í raun upptök sín hjá knapanum sjálfum?

Í nýrri greinaröð Eiðfaxa, Knapinn sem íþróttamaður, verður sjónum beint að knapanum sjálfum. Í fjórum greinum verður fjallað um líkamsbeitingu, styrk, jafnvægi og líkamsvitund knapa og áhrif þessara þátta á hestinn. Leitað verður til sérfræðinga á sviði reiðmennsku, líkamsþjálfunar og sjúkraþjálfunar. Í síðustu greininni fáum við svo innsýn í hvernig afreksknapi nálgast eigin líkamsþjálfun og undirbúning.

Fyrsti viðmælandi greinaraðarinnar er Mette Mannseth, yfirreiðkennari við Háskólann á Hólum og meistari innan Félags tamningamanna. Hún hefur áratuga reynslu af kennslu og þjálfun hesta og knapa og leggur áherslu á mikilvægi þess að knapinn þekki eigin líkama og geti stjórnað honum.

Þegar knapinn er skakkari en hesturinn

Að mati Mette þarf knapinn að búa yfir grunnstyrk, jafnvægi og nægilegum hreyfanleika til að geta fylgt hreyfingum hestsins án þess að trufla þær. Skilningur á atferli hestsins og hreyfingum hans sé ekki síður mikilvægur.

Í kennslu sinni verður hún vör við ýmis frávik í líkamsbeitingu knapa sem geta haft áhrif á jafnvægi þeirra og samspilið við hestinn. Sem dæmi nefnir hún að knapar geti setið hoknir, hallað sér of mikið fram eða aftur eða verið skakkir til hliðar. Einnig geti staða höfuðs, brjóstkassa og mjaðmagrindar haft áhrif á þyngdardreifingu knapans og getu hans til að fylgja hreyfingum hestsins.

Góð líkamsstaða og jafnvægi séu því mikilvæg forsenda þess að knapinn geti beitt líkamanum á markvissan hátt án þess að trufla hestinn að óþörfu.

Mette bendir á að hestur geti upplifað ábendingar mismunandi eftir því hver situr á honum. Knapinn geti sjálfur verið skakkur eða missterkur og þannig haft áhrif á það sem hann finnur hjá hestinum. Hún telur jafnvel að fólk sé oft mun skakkara en hestarnir sem það situr á.

Þegar okkur finnst hesturinn stífari eða erfiðari á aðra höndina er því ástæða til að velta fyrir sér hvort eigin líkamsbeiting geti átt þar hlut að máli.

Líkamsbeiting knapans og gæði töltsins

Áhrif knapans á hreyfingar hestsins hafa einnig verið skoðuð í rannsóknum. Árið 2023 birtist lítil frumrannsókn þar sem fjórir reyndir knapar riðu tveimur íslenskum hestum á tölti. Með mælibúnaði voru meðal annars skoðaðar hreyfingar bols og mjaðmagrindar knapanna, kraftur í ístöðum og ákveðnir þættir í tölti hestanna.

Niðurstöðurnar bentu til einstaklingsbundinna tengsla milli líkamsbeitingar sumra knapanna og mælinga á tölti. Rannsóknin var lítil og niðurstöðurnar gefa því ekki tilefni til almennra ályktana. Þær vekja þó áhugaverðar spurningar um samspil knapa og hests.

Mette þekkir vel úr kennslu og þjálfun að líkamsbeiting knapans getur haft áhrif á gangtegundir og jafnvægi hestsins. Hún telur þetta sérstaklega mikilvægt í þjálfun ungra hesta sem hafa ekki enn náð fullu jafnvægi undir knapa.

Skökk eða óstöðug áseta getur gert hestinum erfiðara fyrir að finna jafnvægið. Knapi sem hefur góða stjórn á eigin líkama getur hins vegar stutt við hann í þeirri vinnu.

Knapinn undir smásjánni á Hólum

Við Háskólann á Hólum hefur verið lögð aukin áhersla á markvissa líkamsþjálfun knapa. Í áfanganum Knapaþjálfun vinna nemendur með eigin líkamsbeitingu, jafnvægi og styrk. Þar er meðal annars stuðst við einstaklingsmiðaða þjálfun og greiningu á ásetu.

Mette segir að á undanförnum misserum hafi verið ráðist í sérstakt átak í knapaþjálfun við skólann. Nemendur gangast undir líkamsstöðugreiningu og fá æfingar sem taka mið af niðurstöðunum. Bæði reiðkennarar og sjúkraþjálfarar koma að kennslunni og meðal annars er unnið með bolta og rúllur til að bæta líkamsstjórn og jafnvægi.

Fastur hluti áfangans er nýr knapaþjálfunarstóll sem Hestafræðideildin hefur tekið í notkun. Stóllinn líkir eftir ásetu knapa á hesti og er tengdur mælibúnaði sem sýnir jafnvægispunkt knapans í rauntíma. Með myndavélum geta nemendur jafnframt skoðað eigin líkamsstöðu aftan frá og frá hlið. Þannig geta þeir greint skekkjur eða ójafnvægi sem þeir verða jafnvel ekki sjálfir varir við.

Búnaðurinn gerir nemendum kleift að sjá hvernig breytingar á líkamsbeitingu hafa áhrif á jafnvægið og vinna markvisst að því að bæta ásetuna.

Mette segir að nemendur læri einnig að greina líkamsbeitingu annarra knapa og aðstoða þá við að bæta sig. Markmiðið sé að knapinn öðlist betri skilning á eigin líkama og áhrifum hans á hestinn.

Nýr jafnvægisstóll á Hólum gerir nemendum kleift að skoða eigin líkamsbeitingu og jafnvægi með aðstoð mælibúnaðar. Mynd: Háskólinn á Hólum.

Ekki nóg að vera í góðu formi

Mette leggur áherslu á að almennur líkamsstyrkur og gott líkamlegt form séu kostir en tryggi ekki sjálfkrafa góða ásetu.

Knapinn þurfi fyrst og fremst að hafa jafnvægi, kjarnastyrk og nægilegan hreyfanleika til að geta setið í jafnvægi yfir hestinum og fylgt hreyfingum hans.

Hún telur að sérhæfðar æfingar sem taka mið af líkamsbeitingu hvers knapa geti verið gagnleg viðbót við almenna líkamsrækt.

Það er því ekki eingöngu spurning um hversu sterkur knapinn er heldur hversu vel hann getur nýtt styrkinn og stjórnað eigin líkama.

Líka spurning um velferð hestsins

Að mati Mette snýst líkamsbeiting knapans ekki eingöngu um betri reiðmennsku eða árangur á keppnisvellinum. Hún tengist einnig velferð hestsins.

Knapi sem situr skakkur, fylgir ekki hreyfingum hestsins eða situr þungt í hnakknum getur haft áhrif á álagið sem hesturinn verður fyrir.

Þess vegna telur hún mikilvægt að knapar beri ábyrgð á eigin líkamsbeitingu og líkamlegum undirbúningi. Sú ábyrgð sé hluti af því að skapa hestinum góðar aðstæður til að sinna þeim verkefnum sem honum eru ætluð.

Við gerum miklar kröfur til hestsins um að hann beri sig rétt, haldi jafnvægi og sé sveigjanlegur til beggja hliða. Til þess að hann geti gert það þurfum við einnig að huga að því hvernig við sitjum á honum.

Kannski ættum við því oftar að spyrja okkur einfaldrar spurningar þegar eitthvað gengur ekki upp í reiðmennskunni:

Er það örugglega hesturinn sem þarf að breyta einhverju?

Í næstu grein í greinaröðinni „Knapinn sem íþróttamaður“ ræðum við við Heiðrúnu Halldórsdóttur, Pilateskennara, um hvernig markviss líkamsþjálfun getur hjálpað knöpum að bæta jafnvægi, styrk og líkamsvitund.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link