Landsamband hestamanna Rosemarie hlaut heiðurskross ÍSÍ

  • 30. október 2026
  • Fréttir

Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir hlaut heiðurskross ÍSÍ á Landsþingi hestamannafélaga 2026

Viðurkenningin er veitt einstaklingum fyrir frábært, ómetanlegt og langvarandi starf í þágu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.

Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir hlaut heiðurskross ÍSÍ, æðstu heiðursviðurkenningu íþróttahreyfingarinnar. Viðurkenningin er veitt einstaklingum fyrir frábært, ómetanlegt og langvarandi starf í þágu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.

Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir

Rosmarie er reiðkennari og einn af frumkvöðlum í íslenskri hestamennsku. Hún lagði mikið af mörkum til þróunar reiðkennslu og æskulýðsstarfs í tengslum við íslenska hestinn, bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi. Hún var brautryðjandi í reiðkennslu á Íslandi eftir að hafa lært klassíska reiðmennsku í virtum reiðskóla í Þýskalandi. Rosemarie stofnaði Reiðskólann í Vestra-Geldingaholti árið 1964, það var fyrsti reiðskólinn á Íslandi í einkaeigu og starfrækti hún hann í 53 ár. Reiðskólinn í Vestra-Geldingaholti var heimavistarskóli en börn dvöldu í 7-14 daga og mörg hver komu sumar eftir sumar. Um 5000 börn og unglingar námu reiðkennslu hjá Rosemarie í reiðskólanum í Vestra-Geldingaholti þar sem margir lögðu grunn að sinni hestamennsku. Rosemarie var ákveðinn en hlýr skólastjóri og þótti hjartanlega vænt um nemendur sína. Rosemarie vann mikið að æskulýðsmálum bæði hjá LH og innan FEIF alþjóðasamtaka íslenska hestsins og var liðsstjóri íslenskra unglinga á FEIF Youth Cup í fjölda mörg ár.

Rosemarie hlaut heiðursverðlaun LH árið 2007 og gullmerki ÍSÍ 2009.

Rosemarie Brynhildur er hér með sæmd Heiðurkrossi ÍSÍ.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link