Landsamband hestamanna Siggi Sæm hlaut gullmerki ÍSÍ

  • 30. október 2026
  • Fréttir

Sigurður Sæmundsson hlaut gullmerki ÍSÍ á Landsþingi hestamannafélaga 2026

Gullmerki ÍSÍ er veitt einstaklingum fyrir framúrskarandi störf, sjálfboðaliðastarf eða framlag til íslenskrar íþróttahreyfingar.

Sigurður Sæmundsson hlaut gullmerki ÍSÍ en gullmerki ÍSÍ er veitt einstaklingum fyrir framúrskarandi störf, sjálfboðaliðastarf eða framlag til íslenskrar íþróttahreyfingar.

Sigurður Sæmundsson

Sigurður Sæmundsson á glæsilegan feril að baki bæði sem keppandi og sem landsliðseinvaldur íslenska landsliðsins í hestaíþróttum.

Sigurður var í hópi fremstu afreksknapa landsins á sínum yngri árum. Hann tók fyrst þátt fyrir hönd Íslands á Evrópumeistaramóti sem haldið var í Sviss árið 1972. Hann keppti alls á fimm Evrópu- og Heimsmeistaramótum fyrir hönd Íslands og vann þar til glæsilegra verðlauna: tvenn gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun.

Eftir að keppnisferlinum lauk tók hann við keflinu sem landsliðseinvaldur og liðsstjóri íslenska landsliðsins til margra ára, allt til ársins 2007. Í því hlutverki stýrði hann landsliðshópnum á fjölda Heimsmeistaramóta, hélt utan um val á knöpum og hrossum og skipulagði liðið og ferðalögin út á stórmót.

Sigurður hefur hlotið bæði gullmerki LH og Heiðursverðlaun LH sem er æðsta viðurkenning sem LH veitir.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link