„Ég er áhugamaður plús“
Haukur Baldvinsson og Andvari frá Kerhóli. Ljósmynd: Loftur Hauksson
Haukur Baldvinsson er nýliði í íslenska landsliðshópnum sem tilkynntur var í lok október. Ólíkt flestum sem valdir eru í landslið Íslands hefur Haukur ekki atvinnu af tamningu og þjálfun hrossa.
„Mér líður mjög vel,“ segir Haukur aðspurður um tilfinninguna. Hann segir landsliðssætið ekki hafa verið beinlínis á teikniborðinu: „Maður er alltaf bara að reyna að standa sig og hafa gaman af þessu, gera sitt besta og sjá hvað það skilar manni. Auðvitað sá maður fyrir sér að þetta gæti gerst, en ekki endilega núna. Þetta er bara mjög skemmtilegt og auka bónus að sonur minn, Loftur, sé líka kominn inn í ungmennahópinn.
Dagsdaglega vinnur Haukur sem bílasali og ríður út og þjálfar sín hross eftir vinnu í Austurási þar sem hann stundar hrossarækt ásamt konu sinni Ragnhildi Loftsdóttur og fjölskyldu. “Ég hef stundum sagt í gríni að ég sé svona “áhugamaður plús”, segir Haukur. “Ég ríð bara út mér til skemmtunar. Samhliða því hef ég passað upp á líkamlega formið, stunda ræktina reglulega. Það skiptir gríðarlega miklu máli að knapinn sé í góðu ástandi líkt og hesturinn.”
Þrátt fyrir það að vera “áhugamaður plús” er Haukur enginn nýgræðingur á keppnisvellinum, hann státar af fimm Íslandsmeistaratitlum á ferlinum. Þrisvar sinnum í gæðingaskeiði á Fal frá Þingeyrum og tvisvar sinnum í samanlögðum fimmgangsgreinum á Sölva frá Stuðlum.

Haukur og Sölvi frá Stuðlum. Íslandsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum á Íslandsmóti á Hólum árið 2021. Við hlið hans stendur Elvar Einarsson formaður Hestamannafélagsins Skagfirðings
Féll fyrir Andvara á Stóðhestaveislu
Nú er hann kominn með nýjan keppnishest, Andvara frá Kerhóli, en þeir hófu sinn keppnisferil á síðasta ári og stóðu sig svo frábærlega í ár og urðu til að mynda í öðru sæti á Íslandsmótinu í gæðingaskeiði með 8,79 í einkunn. “Ég sá hann fyrst á Stóðhestaveislu sýndur af Rósu Birnu Þorvaldsdóttur og varð strax mjög heillaður af honum. Hann hvarf ekki úr höfðinu á mér eftir það. Ég setti mig í samband við Rósu Birnu og Þór Jónsteinsson með það að markmiði að kaupa hann, það leið nokkur tími þar til samningar tókust, en það gekk upp að lokum. Andvari er gæðingur, kraftmikill en samt algerlega undir stjórn. Geðslagið er einstakt, hann er vel taminn og þjálfaður og gaman að byggja ofan á það.”
Þegar kemur að vetrarþjálfuninni ætlar Haukur að halda sínu striki. Hann stefnir ekki á þátttöku í Meistaradeildinni sjálfur, enda henti það ekki hans dagskrá: „Ég einbeiti mér að tveimur hestum til að geta gert það vel sem ég er að gera. Svo ætla ég að sinna syninum og standa þétt að baki honum í ungmennadeildinni.“
Hann leggur ríka áherslu á að sækja sér kennslu og nefnir meðal annars samstarf sitt við Anton Pál Níelsson sem kemur reglulega til þeirra. Á heimilinu er einnig mikil hrossarækt og nóg um að vera. „Húsið er þéttsetið fyrir vetrarþjálfunina, en Ragga stýrir því öllu með miklum glæsibrag. Þetta lítur allt mjög vel út og það er spennandi tími fram undan,“ segir Haukur að lokum.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing