Fjölskyldusýning á Akureyri á laugardag

  • 12. apríl 2011
  • Fréttir
Fjölskyldusýning á Akureyri á laugardag

Stórsýningin Fákar og Fjör 2011 fer fram í Top Reiterhöllinni á Akureyri nk. laugardag.

“Það verður hesta og knapaval á sýningunni og þétt dagskrá af fjölbreyttum og skemmtilegum atriðum.  Léttismenn og konur munu mæta til leiks með sín bestu hross, hrossarækt norðan heiða fær sinn skerf af dagskránni og munu nokkur toppbú mæta með sína ræktun á svæðið.  Það verður hörkudagskrá á þessari fjölskylduvænu skemmtun sem hefst kl. 18 á laugardaginn.  Miðaverð er kr. 2.500 og er frítt fyrir 12 ára og yngri.   Miðasala hefst á miðvikudaginn í verslunum Fákasports og Líflands á Akureyri.  Sjáumst kát og hress á Fákum og fjöri 2011,” segir í fréttatilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link