Bergrún í öðru til þriðja sæti eftir forkeppni á Norðurlandamótinu –
Bergrún Ingólfsdóttir og Gellir frá Árbakka stóðu sig með prýði í fjórgangskeppninni á Norðurlandamótinu í Finnlandi.
Forkeppni í ungmennaflokki var að ljúka rétt í þessu og er Bergrún í öðru til þriðja sæti, jöfn Elise Lundhaug sem keppir á heimsmeistaranum Hvini frá Holstmúla fyrir Noreg. En það er önnur norsk stúlka sem sló þeim við og er efst eftir forkeppnina, sú heitir Oda Ugland og keppir á Háreki frá Vindási.
Keppni í fjórgangi fullorðina stendur nú sem hæst og var Denni Hauksson að ljúka góðri sýningu þar en úrslit liggja fyrir síðar í dag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH