Gleði í Skagafirði

  • 24. september 2011
  • Fréttir
Gleði í Skagafirði

Í kvöld 23.sept var haldin sýning í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkrók. Húsfylli var og góð stemning. Talsvert var af fólki af suðurlandi, enda þessi helgi hátíðarhelgi í Skagafirðinum, Laufskálarétt á morgun…

Hross sem komu fram á sýningunni í kvöld voru mörg hver ótrúlega góð miðað við árstíma og mátti sjá  skemmtileg tilþrif hesta á vellinum og snjalla skeiðspretti í gegnum húsið.
Meðal atriða fór fram nýstárleg töltkeppni þar sem dómarar gáfu einkunn upp strax að lokinni einni langhlið hvers hests á hverju atriði og mæltist það vel fyrir. Ræktunarbúið Hafsteinsstaðir kynnti ræktun sína og sett var upp stóðhestakeppni. Ýmislegt fleira var í boði en hér fylgja nokkrar myndir af sýningunni.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link