Pistill frá Litlu-Brekku – fyrra gangmál

  • 17. júní 2013
  • Fréttir
Pistill frá Litlu-Brekku - fyrra gangmál

Pistill frá Litlu-Brekku verður fyrra gangmál í Litlu-Brekku í Eyjafirði. 

Pistill er undan fótaburðahestinum Mola frá Skriðu og fyrstu verðlauna hryssunni Prinsessu frá Litla-Dunhaga, dóttur Baldurs frá Bakka. Hann hefur hlotið í kynbótadómi 8,11 fyrir sköpulag, 8,08 fyrir hæfileika og 8,10 í aðaleinkunn. Hann hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið. Í sinni fyrstu keppni í B-flokki hlaut hann 8,53. Pistill er stór, lofthár og vörpulegur hestur sem mælist 145cm á herðakamb.

Sleppt verður í hólfið fimmtudagskvöldið 20. júní. Hægt er að bæta við örfáum hryssum. Verð er kr. 70.000.- m. vsk.

Nánari upplýsingar veitir Vignir í síma 896-1838

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link