Sýnikennsla hjá Olil Amble

  • 12. mars 2014
  • Fréttir
Til styrktar Rangárhöllinni.

Olil Amble verður með sýnikennslu í Rangárhöllinni á morgun miðvikudaginn 19. mars kl 20.

„Sýnikennslan er til styrktar Rangárhöllinni og er miðaverð einungis 1500 kr og frítt fyrir börn 13 ára og yngri. Þetta er sýnikennsla sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara þar sem Olil Amble hefur tamið og þjálfað hesta með frábærum árangri. Nýverið sigraði Olil gæðingafimi meistaradeildarinnar með met einkunn. Hittumst hress og kát og fylgjumst með snillingi að störfum við sínar þjálfunaraðferðir um leið og við látum gott af okkur leiða,“ segir í fréttatilkynningu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link