Mörg góð hross á yfirlitssýningu á Sauðárkróki í gær

  • 1. júní 2013
  • Fréttir
Mörg góð hross á yfirlitssýningu á Sauðárkróki í gær

Yfirlitssýning kynbótahrossa á Sauðárkróki hófst með sýningu á 4. vetra hryssum klukkan níu á föstudags morgun á félagssvæði Léttfeta. Hross hafa verið leidd fyrir dómara frá því á mánudag en alls fengu 103 hross fullnaðardóm af 114. Að sögn Steinunnar Önnu Halldórsdóttur hafa sýningar gengið vel og mörg góð hross verið sýnd. Segir í frétt á heimasíðu Feykis.

Vallaraðstæður segir Steinunn vera góðar enda var völlurinn tekinn í gegn fyrir skömmu og ekki skemmir veðrið fyrir í dag en sólin skín eins og enginn sé morgundagurinn.

Hæstu aðaleinkunn hefur Narri frá Vestri-Leirárgörðum náð í flokki 7 vetrastóðhesta og eldri 8,65,  Knár frá Ytra-Vallholti 8,39 í flokki stóðhesta 6 vetra, Hraunar frá Vatnsleysu 8,02 í flokki stóðhestar 5 vetra og Besti frá Upphafi 8,00 í stóðhestar 4 vetra.

Hjá hryssunum stendur Muska frá Torfunesi efst í flokki 7 vetra og eldri með aðaleinkunnina 8,08, Brigða frá Brautarholti 8,43 í flokki 6 vetra, Ólafía frá Lækjamóti 8,15 í flokki 5 vetra og Hugsun frá Bessastöðum 7,82 í flokki 4 vetra hryssa.

HÉR er hægt að nálgast röðun hrossa á yfirlitssýningunni og sjá einkunnir vikunnar.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link