Íslandsmótið í hestaíþróttum
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið 2. – 7. júlí 2019 á félagssvæði hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík. Að mótinu standa hestamannafélögin átta sem staðsett eru á suðvesturhorni landsins; Máni, Brimfaxi, Sörli, Sóti, Sprettur, Fákur, Hörður og Adam.
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna ásamt Íslandsmóti barna og unglinga verður haldið saman. Allt mótið mun fara fram á Hvammsvelli. Mótið hefst þriðjudaginn 2. júlí.
Búið er að opna fyrir skráningu á mótið inná www.sportfengur.com og er skráningafrestur til miðnættis þriðjudaginn 25. júní.
Skráningargjald er:
– 5500 kr. fyrir barna- og unglingaflokk
– 6500 kr. fyrir ungmennaflokk
– 7900 kr. fyrir fullorðinsflokk
– 5500 kr. fyrir skeiðgreinar
Eftirfarandi greinar eru í boði:
Meistaraflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 250m skeið P1, 150m skeið P3 og 100m flugskeið P2.
Ungmennaflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 100m flugskeið P2 og fimikeppni A2.
Unglingaflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F2, tölt T1, tölt T4, gæðingaskeið PP1, 100m flugskeið P2 og fimikeppni A.
Barnaflokkur: fjórgangur V2, tölt T3, tölt T4 og fimikeppni A.
Vakin er athygli á því að í fullorðinsflokki eru einkunnalágmörk í allar greinar. Það er parið, hesturinn og knapinn, sem þurfa að ná lágmörkum. Nánari upplýsingar hér: https://www.lhhestar.is/is/frettir/lagmork-a-islandsmot-2019
Nánari upplýsingar um mótið gefa:
Einar Gíslason, framkvæmdastjóri – [email protected]
Þórdís Anna Gylfadóttir, mótstjóri – [email protected]
Styttu haustið með EiðfaxaTV