Tíu fyrir fet-

  • 8. nóvember 2011
  • Fréttir
Tíu fyrir fet-

„Hrossið fasmikið og fetar mjúkt í bol, með stöðugum jöfnum takti, meðalreist, nær framfótaspori vel, hreyfingar rösklegar og rúmar.“ Þetta er lýsing á  fullkomnu feti skv. dómskvarða um kynbótasýningar. Svo skemmtilega vill til að eitt hross hlaut á árinu einkunnina 10 fyrir fet.

Stóðhesturinn Heljar frá Stóra-Hofi var sýndur í Þýskalandi í maí og eins og má sjá á meðfylgjandi myndbandi er stígur hann kraftmikið gæðafet.  

Heljar er, skv. upplýsingum í Worldfeng, eini stóðhesturinn sem hefur hlotið fullt hús fyrir gangtegundina fet. Hann er undan Aroni frá Strandarhöfða og Morgunstjörnu frá Stóra-Hofi. Hann var sýndur hér árið 2008 en var svo seldur Silviu Ochsenreiter-Egli til Þýskalands árið 2009.

Þrjár hryssur hafa hins vegar hlotið 10 fyrir fet í gegnum tíðina; Hrafnkatla L52 frá Leirubakka (móðir Máttar frá Leirubakka)  á Landsmótinu 2002, Eik frá Hofsstaðaseli á Vorsýningu á Sauðárkróki árið 2005 og Gyðja frá Vindási í Héraðssýningu á Gaddstaðaflötum árið 2007.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link