„Markmiðið að ná fram alhliðahesti með úrvalstölti“

  • 16. september 2026
  • Fréttir

Hekla Rán Hannesdóttir stillir Herská upp í sköpulagsdómi

Herskár frá Eystra-Fróðholti efstur ásamt Sigri frá Leirulæk í 4.vetra flokki stóðhesta

Í flokki fjögurra vetra stóðhesta eru það tveir hestar sem hæsta einkunn hlutu á árinu, en þeir hlutu báðir sömu aðaleinkunnina, 8,51. Þetta eru þeir Herskár frá Eystra-Fróðholti og Sigur frá Leirulæk. Í þessari grein er fjallað um Herská en sambærileg umfjöllun um Sigur birtist fljótlega hér á Eiðfaxa.

Alls voru sýndir í fullnaðardómi 67 fjögurra vetra stóðhestar á landinu á árinu. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi er 8,11 og hlutu 48 þeirra 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og þar með 1. verðlaun.

Herskár er ræktaður af Ársæli Jónssyni og Ragnheiði Hrund Ársælsdóttur, en eigendur eru Ársæll ásamt Önnu Fíu Finnsdóttur. Hann hlaut í sínum hæsta dómi 8,17 fyrir sköpulag og 8,69 fyrir hæfileika, sem gefur 8,51 í aðaleinkunn. Þar ber hæst 9,5 fyrir bæði skeið og samstarfsvilja, ásamt 9,0 fyrir tölt og bak og lend. Það var Jón Ársæll Bergmann sem sýndi Herská.

Mikils vænst

Herskár er undan Óskasteini frá Íbishóli og Spá frá Eystra-Fróðholti. „Hugsunin á bak við það að para þessi hross saman var að ná fram frábærum alhliðahesti með úrvalstölti,“ segir Ársæll aðspurður um valið á stóðhesti. „Ég var nú aðallega að hugsa um hæfileikana, enda var hvorugt foreldrið beint talið fallegt eftir málbandi.“

Nafnið á hestinum kom snemma og þótti hæfa gripnum vel: „Dóttir mín, Ragnheiður Hrund, fann upp á nafninu Herskár og okkur fannst það eiga sérlega vel við, enda væntum við alltaf mikils af honum.“

Rólegur og rúmur á brokki

Í uppvextinum minnti Herskár mjög á annan þekktan gæðing úr ræktun þeirra í Eystra-Fróðholti. „Hann var mjög rólegur, yfirvegaður og sérstaklega ljúfur og auðveldur í allri umgengni,“ útskýrir Ársæll. „Hann þótti mjög líkur frænda sínum, Arion frá Eystra-Fróðholti, í öllu uppeldi , alltaf rólegur og yfirvegaður. Hann sýndi hins vegar mjög sterkt brokk, afar svifmikið og yfirferðarmikið. Hann fór eiginlega bara mest á því og hélt alltaf sama hraða og hrossin sem voru með honum í hópnum; eftir því sem þau hlupu hraðar jók hann bara ferðina á þessu mikla yfirferðarbrokki, sem að mínu mati var skýrt merki um mikið rými og hraða.“

Þróun Herskás í tamningu gekk hratt og vel fyrir sig. „Herskár var mjög rólegur og fínn en það þurfti að gangsetja hann. Ég var reyndar mjög ánægður með að það þyrfti að gangsetja hann, því ég var alltaf viss um að hann yrði mjög rúmur á skeiði og fannst það jákvætt merki. Gangskilin urðu svo hrein og klár um leið og hann fór að ná réttu jafnvægi og styrk.“

Fyrsti dómur stóðst allar væntingar

Þegar kom að vorinu og kynbótasýningum komu gæðin berlega í ljós. „Bæði ég og þjálfararnir, Jón Ársæll og Hekla Rán, sáum auðvitað strax í hvað stefndi, en maður veit aldrei neitt fyrir víst með þessi ungu tryppi fyrr en í dómnum. Hann olli okkur allavega svo sannarlega ekki vonbrigðum í fyrsta dómi.“

Á Landsmótinu á Hólum lækkaði Herskár nokkuð frá fyrri dómi, en það virtist mest mega rekja til þess að hann fór í uppnám við eitthvað við völlinn. Ársæll tekur því af miklu æðruleysi:
„Þetta var óhapp eins og gengur. Hesturinn breyttist ekkert í mínum huga við þetta. Það voru þarna skruðningar í hátölurunum og ýmsar utanaðkomandi aðstæður sem trufluðu hann, sem kom mér vissulega mjög á óvart. En eins og við sögðum, ég, Jón og Hekla, þá var þetta það allra síðasta sem okkur hefði nokkurn tímann dottið í hug að gæti komið upp á við hann. Þetta á alls ekki eftir að verða honum að falli held ég.“

Stefnt á kynbótadóm og A-flokk

Framtíðarplönin með Herská eru skýr og spennandi: „Ætli þetta verði ekki hefðbundin saga; hann verður sýndur aftur næsta vor og svo sennilega í kynbótadómi á næsta Landsmóti. Ef allt gengur eftir endar hann svo væntanlega í A-flokki gæðinga.“

Töfraformúlan í Eystra-Fróðholti

Ættbogi Herskás er afar merkilegur, en hrossaræktin í Eystra-Fróðholti hefur verið margrómuð fyrir mikil gæðingshross. Þar vegur einna mest heiðursverðlaunahryssan Gletta frá Bakkakoti (undan Óði frá Brún og Særósu frá Bakkakoti). Undan Glettu voru ræktuð tíu alsystkini undan Sæ frá Bakkakoti og því um töluverða skyldleikaræktun að ræða út af Ófeigi frá Flugumýri. Má þar nefna stórgæðinga á borð við Glímu frá Bakkakoti, Spá (móður Herskás), Arion frá Eystra-Fróðholti, Gná og Glettu frá Eystra-Fróðholti.

„Við byrjuðum á því að fá Glímu, sem ég tel algjört yfirburða úrvalshross, og svo komu Spá og Arion. Það kom eiginlega aldrei annað til greina en að halda Glettu mikið undir Sæ. Ég hélt henni reyndar tvisvar sinnum undir aðra stóðhesta en Sæ, en komst fljótt að því að þessi tiltekna pörun virtist vera uppskriftin að hinni fullkomnu blöndu og mér sýnist hún passa einstaklega vel inn í hrossastofninn í dag.“

Aðspurður hvort hann hafi aldrei verið smeykur við svo mikla skyldleikaræktun svarar Ársæll afdráttarlaust:
„Nei, það hef ég ekki verið. Ef maður gerir þetta af skynsemi og hófsemi, fer inn og út úr skyldleikaræktuninni , þá er hún mjög jákvæð til að stimpla inn og festa í sessi þá bestu kosti sem maður vill sjá. Mér líkar alveg sérstaklega vel að hafa Óð frá Brún sterkt á bak við báðum megin, því þaðan fáum við einfaldlega besta tölt sem völ er á. Markmiðið er alltaf að rækta hross sem beita afturpartinum vel og eiga auðvelt með að bera sig, og það eru einmitt hrossin sem við byggjum okkar ræktun á.“

Hæst dæmdu 4.vetra stóðhestarnir í ár
Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi Aðaleinkunn 
Herskár Eystra-Fróðholti Jón Ársæll Bergmann 8.51
Sigur Leirulæk Þorgeir Ólafsson 8.51
Þokki Skipaskaga Árni Björn Pálsson 8.49
Safír Strandarhjáleigu Elvar Þormarsson 8.46
Kjarval Hafnarfirði Þorgeir Ólafsson 8.46
Þráður Kjarri Axel Örn Ásbergsson 8.43
Hamar Auðsholtshjáleigu Árni Björn Pálsson 8.41
Lakkrís Efri-Fitjum Þorgeir Ólafsson 8.41
Höfði Hestkletti Þórarinn Eymundsson 8.41
Losti Hæli Daníel Jónsson 8.4
Dalur Bergi Þorgeir Ólafsson 8.4

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link